lengd þingfundar.
Frú forseti. Þetta lýtur að því sem ég nefndi hér áðan, þetta er gegnumgangandi vanvirðing við ekki bara reglur þingsins heldur líka hefðir sem hafa verið óumdeildar og ég hef talið að allir hv. þingmenn í gegnum tíðina hafi verið mjög sáttir við. Ein af þessum hefðum er að eftir setningu búnaðarþings taki þingflokkar á móti bændum og það hyggjumst við þingmenn Miðflokksins gera. Ég veit að það eru margir bændur áhugasamir um að hitta þingflokkinn og alla hv. þingmenn Miðflokksins langar að hitta bændur. Því þá að fara í gegnum þessa beiðni hér um að geta látið fund standa meðan á þessu stendur, þessu samráði við bændur, sem er áratugagömul hefð? Þess vegna segi ég nei.