lengd þingfundar.
Frú forseti. Það er vissulega óheppileg tilviljun að þetta skuli vera þannig að mál sem ég mæli fyrir hér á eftir um lagareldi skuli vera á sama degi, og mögulega kalla fram á kvöldfund, og við erum með boð fyrir bændur í tilefni búnaðarþings. En ástæðan er sú — af því að ég sé að þeir sem gagnrýna þetta fyrirkomulag hafa gleymt þeirri staðreynd að lagareldismálið var tilbúið til umræðu í þinginu í síðustu viku en forseti Alþingis og meiri hlutinn varð við þeirri ósk minni hlutans að hvíla málið fram yfir helgi til að þeir gætu betur kynnt sér efni frumvarpsins, enda er um viðamikið mál að ræða. Afleiðing þeirrar beiðni er sú að málið er á dagskrá í dag. Síðan er bara spurning hversu vel við náum að halda á spilunum og ræða efnisatriði málsins. Vonandi klárum við þetta hratt og vel.