157. löggjafarþing — 87. fundur,  23. mars 2026.

lengd þingfundar og búnaðarþing.

[15:20]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegur forseti. Ég taldi mig áðan verið að ræða um atkvæðagreiðsluna og bað um orðið til að gera grein fyrir atkvæði mínu. En ég nefndi áðan að þetta væri hugsanlega áratugagömul hefð. Það er ekki rétt. Miðað við þær upplýsingar sem ég hef þá hófst þetta 1899. Nú er brotið blað. Ég sé hér að stjórnarliðar hlæja. Já. Það segir kannski allt um stöðuna. Það hefur verið góð samstaða um þessa fallegu og góðu hefð allan þennan tíma. En „ég á þetta, ég má þetta“-ríkisstjórnin, henni gæti ekki verið meira sama. Hér eiga menn að klára og tala hratt í stórum málum, annars mega þeir ekki hitta bændur eins og við þingmenn erum búnir að gera frá 1899.