157. löggjafarþing — 87. fundur,  23. mars 2026.

lengd þingfundar og búnaðarþing.

[15:27]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf):

Frú forseti. Það er áhugavert að hlýða á forsvarsmenn stjórnarandstöðunnar, hv. þingmenn, tala um að lýðræðið sé í hættu, að það sé að einhverju leyti verið að ganga á svig við hefðir þegar við höfum nokkrar klukkustundir til að fara í þessa 1. umræðu sem stendur fyrir dyrum. Það er alveg ljóst að 1. umræða er bara hugsuð til þess að geta spurt hæstv. ráðherra út í efni málsins og þrjár til fjórar klukkustundir ættu að nægja til þess. Það eru í rauninni þessir leikrænu tilburðir sem eru hér, að tala um að lýðræðið sé í hættu og að það sé verið að tala niður til bænda með það að mál hafi eðlilegan framgang í þinginu — það er mjög sérkennilegt og sýnir að það býr eitthvað annað að baki því að menn treysta sér ekki til umræðunnar og eru bara að tefja tímann í stað þess að fara í efnislega umræðu um málið og hefja hér fyrirspurnatíma. En það er greinilegt að stjórnarandstaðan treystir sér ekki til þess.