lengd þingfundar og búnaðarþing.
Virðulegi forseti. Ég vildi bara koma hingað upp í tilefni þess sem hér er verið að segja, að það sé verið að brjóta blað og hér sé einhver lítilsvirðing í gangi gagnvart bændum. Það hefur komið skýrt fram hjá okkur — og ég skal bara vitna aftur í það, þetta var rætt á fundi í morgun hjá þingflokksformönnum — að það var skýr vilji allra til þess að koma málum þannig fyrir að allir flokkar gætu hitt bændur og haldið sínar móttökur. Það hefur enginn haldið öðru fram. Hér er ekki verið að brjóta eitthvert blað, það er bara rangt þegar því er haldið fram. Það er ekki í neinu samræmi við það sem stjórnarliðar hafa verið að segja hér og það er ekki í neinu samræmi við þann anda sem var á fundi þingflokksformanna með forseta í dag. Það geta allir þingmenn hitt bændur á eftir, allir. Það er enginn að leggja það til að það verði ekki gert.