157. löggjafarþing — 87. fundur,  23. mars 2026.

lengd þingfundar og búnaðarþing.

[15:31]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M):

Frú forseti. Við sem vorum á setningunni hjá bændum núna fyrir hádegi hlökkuðum til að hitta þá í kvöld. En nú ber svo til að stjórnin ætlar að ræða risastórt mál, lagareldi, og skjölin sem liggja hér frammi hjá okkur eru rúmlega 130 blaðsíður. Þetta á auðvitað bara að klára á þremur og hálfum tíma.

Frú forseti. Við biðjum ekkert um að þið hættið við þetta. Það er búið að greiða atkvæði um þetta, þau gleymdu bara bændum. Í guðanna bænum, við skulum bara halda áfram að tala um þetta fram á kvöldið og sleppa þessu, brjóta þessa hefð. Við höfum verið að bíða eftir því að hitta bændur í marga daga síðan þetta var ákveðið. Nei, þau ætla að halda áfram að tala um lagareldi, 131 bls., það geta allir talað um þetta, það er nægur tími.