aðgerðir stjórnvalda varðandi verðbólgumarkmið og kjarasamninga.
Frú forseti. Ég þakka fyrir spurninguna frá hv. þingmanni. Þetta eru auðvitað vonbrigði. Það eru ekki góð tíðindi að Seðlabankinn hafi séð sig knúinn til að hækka vextina. Við höfum séð vaxtalækkanir fram að þessu og ég get alveg viðurkennt það að eftir að við sáum lægstu verðbólgumælingu í fimm ár hér fyrir jól þá vorum við vongóð og freistuðumst til að fagna of snemma. En við skulum samt hafa það í huga, og þetta skiptir líka máli upp á verðbólguvæntingar þó að við setjum auðvitað markið hátt og viljum gera betur, að verðbólga og stýrivextir eru á svipuðum stað og þau hafa verið að meðaltali á þessari öld.
Við vitum alveg hvernig saga efnahagsmála hefur verið á Íslandi. Þetta hefur reynst okkur raun en það þýðir ekki að við séum ekki að vinna að því marki og þó að það hafi orðið bakslag núna, m.a. út af því að við höfum séð væntingar um þróun á hrávöruverði en líka ef við horfum bara á verðlag á mörkuðum. Við höfum séð í einhverjum tilvikum óþarfa álagningu. Við höfum séð launaskrið umfram kjarasamninga sem gerir það að verkum að heildarlaun eru að hækka meira en var samið um og að því leytinu til þurfum við öll að velta fyrir okkur hvernig við komumst í samstillt átak. Við gerum því ekki lítið úr vandanum og mér dettur ekki í hug eða okkur að hlaupast undan ábyrgð.
Ef spurningin er sú hvort við kynnum ófjármagnaða aðgerðapakka í tengslum við kjarasamninga á næstu vikum eða mánuðum þá er svarið nei. Við munum ekki gera líkt og síðasta ríkisstjórn að kynna hér ófjármagnaða aðgerðapakka. Það er hluti af vandamálinu. Stöðugleiki í efnahagsmálum er langtímaverkefni. Ríkið getur vissulega haft áhrif en ríkið hreyfir sig ekki eins hratt og t.d. Seðlabankinn. Við erum með stærstu einstöku aðgerðina okkar sem við kynnum núna í þessari viku, að skila hallalausum fjárlögum í fyrsta skipti í að verða tíu ár. Þetta er stórt verkefni. Þetta er erfitt verkefni en við skorumst ekki undan ábyrgð og við förum ekki í ófjármagnaðar aðgerðir líkt og síðasta ríkisstjórn.