aðgerðir stjórnvalda varðandi verðbólgumarkmið og kjarasamninga.
Frú forseti. Hér er ýmislegt á réttri leið, vissulega, þó að bakslag hafi orðið. Við höfum lögfest stöðugleikareglu. Við höfum lækkað skuldir ríkisins um 7,5% af landsframleiðslu. Við erum að skila fyrstu hallalausu fjárlögunum sem við höfum séð í að verða áratug. Svörin í þessari pontu eru ekkert að fara að breytast frá viku til viku. Við erum með langtímaplan. Þannig náum við árangri, það liggur alveg fyrir. Við erum með langtímaplan. Þannig náum við árangri. Við tökum stöðuna alvarlega en við erum ekki að fara á taugum. Við erum ekki að kynna ófjármagnaða kjarapakka eins og komu hér trekk í trekk í síðustu ríkisstjórn og gerði það að verkum að hér tókst ekki að ná hallalausum fjárlögum. Það er ekki auðvelt að ná hallalausum fjárlögum, enda hefur það ekki gengið í áraraðir. Þessi ríkisstjórn er að gera það, þannig að ég ítreka: Við erum með langtímaplan, við erum með langtímaáætlanir. Það mun hins vegar þurfa samstillt átak ríkis og aðila vinnumarkaðarins og ég vek athygli á því að það samtal er núna í gangi.