157. löggjafarþing — 87. fundur,  23. mars 2026.

sjávarútvegur og ESB.

[15:42]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Frú forseti. Eins og þekkt er fór ríkisstjórnin á taugum yfir því hversu illa gengur í efnahagsmálunum og ákvað að beina athyglinni annað og valdi til þess umdeildasta mál sem hægt væri að ráðast í, að steypa samfélaginu í átök um aðild að Evrópusambandinu. Þó hefur ríkisstjórnin verið nokkuð treg til að gefa upp hvað hún ætlar sér, þ.e. hvaða aðferðir verði notaðar til að ná markmiðinu um að koma Íslandi inn í Evrópusambandið. Hæstv. utanríkisráðherra hefur reyndar sagt afdráttarlaust að það sé ófrávíkjanleg krafa að Ísland haldi áfram fullum og varanlegum yfirráðum yfir náttúruauðlindum sínum, þar með talið í sjávarútvegi.

Spurning mín til hæstv. atvinnuvegaráðherra er: Deilir hæstv. atvinnuvegaráðherra þessu mati hæstv. utanríkisráðherra? Jafnframt væri áhugavert að heyra hjá hæstv. ráðherra hvernig þetta mat og þessi afstaða samrýmist því að nú hefur hv. þingflokksformaður Samfylkingarinnar þegar byrjað að velta því fyrir sér og lýst áhuga á því að komast að því hvað Íslendingar kynnu að fá stóra hlutdeild í uppsjávarveiðum ef gengið yrði Evrópusambandinu á hönd. Spurningin snýr þó aðallega þessu, afstöðu hæstv. ráðherra til náttúruauðlinda og sjávarútvegs, og sé hæstv. ráðherra sammála hæstv. utanríkisráðherra, þarf þá yfir höfuð að opna sjávarútvegskaflann? Því að hann verður ekki opnaður nema umsóknarríki gefi til kynna að það sé tilbúið til að gefa eitthvað eftir. Er þessu ekki sjálfhætt miðað við þessa skilgreiningu ef Evrópusambandið gerir kröfu um að sjávarútvegskaflinn verði opnaður?