sjávarútvegur og ESB.
Frú forseti. Ég hef áður nefnt að þessir fyrirspurnatímar hérna verða hálftilgangslausir ef þeir eru fyrst og fremst nýttir af ráðherrum til að flytja æfðu frasana sína fremur en að svara spurningunum sem til þeirra er beint. Ég verð þó að bregðast við einu sem þó kom fram hjá hæstv. ráðherra en það var mat hans að það að segja nei í þessari áformuðu þjóðaratkvæðagreiðslu ríkisstjórnarinnar væri miklu stærra svar en hitt vegna þess að það lokaði menn inni. Það kom nú bara fram á fundi utanríkismálanefndar í morgun af hálfu utanríkisráðuneytisins að það væri aldeilis ekki svo, því að jafnvel þótt menn segðu nei þá hæfist bara aukið samstarf við Evrópusambandið á annan hátt heldur en með aðlögunarferli.
En ég ætla að gera aðra tilraun til að fá skýrt svar við spurningunni: Er það ófrávíkjanleg krafa að mati hæstv. ráðherra að í hugsanlegum aðildarviðræðum haldi Íslendingar fullum og óskoruðum og varanlegum yfirráðum yfir náttúruauðlindum og þar með talið sjávarútvegi? Og er þá einhver ástæða til að opna sjávarútvegskaflann?