sjávarútvegur og ESB.
Frú forseti. Ég hef mjög gaman af rökræðum en það er einn þáttur rökræðu sem ég á erfitt með, eða eitt í þáttum þeirra sem ég ræði við, og það er það að gera samasemmerki á milli þess að fá ekkert svar og fá ekki svarið sem maður vill fá. Nú er ég ekki alveg klár á því hvað hv. þingmaður vill hér en ég lauk máli mínu áðan á því að segja að það væri lykilatriði í viðræðum að við héldum yfirráðum yfir auðlindum okkar. (SDG: Ófrávíkjanlegt?) Ég þarf að segja þetta aftur: Það er ófrávíkjanleg krafa að við höldum yfirráðum yfir auðlindum okkar. Tel ég viðræðurnar þess virði fyrir hagsmuni íslenskrar þjóðar að láta reyna á það frekar en að loka okkur inni í heimóttarskap og hræðslu, sem ég get ekki skilið hvaðan sprettur, hv. þingmaður? Já, ég tel það betra fyrir íslenska hagsmuni.