157. löggjafarþing — 87. fundur,  23. mars 2026.

tenging bóta almannatrygginga við launavísitölu.

[15:53]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S):

Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin. Það er gleðilegt að hann skuli fylgjast vel með fundum hjá Sjálfstæðisflokknum og e.t.v. lærir hann eitthvað af því. Það virðist hins vegar, frú forseti, enn og aftur erfitt fyrir ráðherra að svara spurningum hér í fyrirspurnatíma. Það liggur alveg fyrir að ráðherrarnir tveir eru að segja sitthvorn hlutinn. Annar segir að fjárveitingavaldið geti ákveðið hækkun bóta. Hinn segir að hækkunin sé bundin í lög. Báðar geta ekki haft rétt fyrir sér. Ég vil því einfalda spurningu mína hér í þeirri von að ráðherrann ráði við að svara henni: Getur fjárveitingavaldið hækkað bætur minna en sem nemur hækkun launavísitölu í fjárlögum án þess að brjóta lög um almannatryggingar? Það skilst manni á hæstv. mennta- og barnamálaráðherra.

Ég vil einnig spyrja hæstv. ráðherra hvort það sé rétt sem kemur fram í máli hæstv. mennta- og barnamálaráðherra þegar hún segir að héðan í frá muni hækkun bóta koma til framkvæmda þegar launahækkanir verða í landinu, þegar launahækkanir verða í landinu en ekki bara 1. janúar ár hvert. Er það rétt að hækkun bóta (Forseti hringir.) komi til á öðrum tíma en 1. janúar ár hvert eða fer mennta- og barnamálaráðherra einfaldlega með rangt mál?