tenging bóta almannatrygginga við launavísitölu.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Ólafi Adolfssyni fyrir síðari spurningu. Eins og ég sagði í mínu fyrra svari þá er alveg skýrt að Alþingi getur auðvitað breytt þessu eins og gert var m.a. árið 2010 með bráðabirgðaákvæði. Það voru sett bráðabirgðaákvæði sem breyttu fyrirkomulagi bótahækkana hérna 2010 og 2011. Það er auðvitað þingsins að geta sett inn slík ákvæði og sömuleiðis að breyta lögum. Það yrði mjög áhugavert að sjá það ef þingið færi ekki eftir lögum sem sett væru um greiðslu bóta og hvernig þær skulu hækka en þetta eru þær leiðir fyrir þingið til þess að breyta þessu.