aðgerðir vegna hækkunar stýrivaxta og verðbólgu.
Virðulegi forseti. Ég ætla ekki að endurtaka það sem kom hér fram en ljóst er að hækkun stýrivaxta og aukning verðbólgu eru slæm tíðindi fyrir heimili landsins og líka atvinnulífið. Allir finna fyrir versnandi stöðu og því er aukin hætta á að kjarasamningar losni síðar á árinu sem gæti aukið enn frekar undirliggjandi verðbólguþrýsting. Ég er ekki að segja að það sé ekki mikilvægt að reka ríkissjóð án halla en ég spyr hæstv. forsætisráðherra: Hvað getum við gert núna fyrir heimilin? Hyggst ríkisstjórnin grípa til frekari aðgerða vegna núverandi stöðu? Það sem þegar hefur verið gert virðist ekki enn hafa skilað nægilegum árangri enda hefur verðbólgan haldið áfram að aukast. Telur hæstv. forsætisráðherra að heimilin geti búið við þessa óvissu, að vita ekki hvað reikningurinn er hár næsta mánuðinn, til lengri tíma án frekari viðbragða ríkisstjórnarinnar?