157. löggjafarþing — 87. fundur,  23. mars 2026.

lagareldi.

529. mál
[16:11]
Horfa

atvinnuvegaráðherra (Hanna Katrín Friðriksson) (V):

Virðulegi forseti. Ég mæli annars vegar hér fyrir frumvarpi til laga um lagareldi á þskj. 898, mál nr. 529, og hins vegar fyrir frumvarpi til laga um breytingar á lögum um lax- og silungsveiði, lögum um fiskrækt og lögum um Fiskræktarsjóð á þskj. 899, mál nr. 530. Þessi mál hafa verið unnin samhliða í atvinnuvegaráðuneytinu.

Ég vil byrja hér fyrst á að fara yfir frumvarp til laga um lagareldi. Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá desember 2024 er kveðið á um að ýta undir vöxt og verðmætasköpun í matvælaframleiðslu. Það á m.a. að gera með því að styrkja lagaumgjörð um fiskeldi til að sporna gegn áhrifum á lífríki og innleiða hvata til eldis á ófrjóum laxi og til eldis í lokuðum kvíum. Markmið ríkisstjórnarinnar um vöxt, verðmætasköpun og skýran og styrkan lagaramma hafa verið leiðarljósið í vinnu atvinnuvegaráðuneytisins undanfarin misseri við það frumvarp sem ég mæli hér fyrir.

Lagareldi er ein af mest vaxandi atvinnugreinum á Íslandi. Verðmæti afurða eldis var samtals yfir 50 milljarðar kr. á síðasta ári. Lax er þar með orðinn næstverðmætasta sjávarafurð okkar Íslendinga á eftir þorski. Sjókvíaeldi hefur vaxið úr því að vera 3.000 tonn árið 2015 en í ár munum við framleiða yfir 50.000 tonn. Þá er uppbygging og fjárfesting í landeldi gríðarlega umfangsmikil og er þetta nú orðin stærsta einkafjárfesting á Íslandi og ef framtíðaráform ganga eftir mun Ísland verða það land sem framleiðir hvað mest af laxi á landi í heiminum. Í lagareldi starfa um 900 manns og hefur uppbygging á atvinnugreininni verið gríðarleg lyftistöng fyrir atvinnustarfsemi í dreifðari byggðum. Sjókvíaeldi hefur gríðarlega jákvæð staðbundin áhrif á Vestfirði og Austfirði en atvinnugreinin er einnig orðin gríðarleg búbót fyrir þjóðarbúið allt. Atvinnulífið er fjölbreyttara og stoðirnar undir efnahagslegri velsæld þjóðarinnar fleiri.

Vinna atvinnuvegaráðuneytisins við þetta frumvarp á sér nokkurn aðdraganda en á árinu 2023 var lögð mikil vinna í stefnumótun lagareldis sem tók m.a. mið af úttekt Ríkisendurskoðunar á lagaframkvæmd, stjórnsýslu og eftirliti sjókvíaeldis sem skilað var í janúar 2023, vinnu starfshópa um smitvarnir í sjókvíaeldi og um strok í sjókvíaeldi sem skilað var á árinu 2023, auk greiningar sem alþjóðlega ráðgjafarfyrirtækið Boston Consulting Group gerði á framtíðarmöguleikum Íslands á sviði lagareldis. Þessi góða undirbúningsvinna nýttist atvinnuvegaráðuneytinu vel við gerð þessa frumvarps. Drög að frumvarpinu voru birt í samráðsgátt stjórnvalda 22. desember sl. og frestur var veittur til að skila inn umsögnum til 26. janúar á þessu ári. Alls bárust yfir 900 umsagnir frá einstaklingum, fyrirtækjum, hagsmunaaðilum, stjórnvöldum, einstökum sveitarfélögum og samtökum þeirra. Mikill fjöldi innsendra umsagna sem bárust í samráðsgátt stjórnvalda, eða 477 talsins, voru til komnar með stöðluðu formi frá vefsíðu og voru ýmist á íslensku eða ensku. Utan samráðsgáttar stjórnvalda bárust svo alls 1.635 umsagnir, þ.e. frá aðilum sem ekki gátu auðkennt sig með rafrænum skilríkjum við innskráningu. Hér er um að ræða umsagnir frá erlendum aðilum í gegnum sama staðlaða formið og áður var minnst á.

Af þessu má vera ljóst að samráðsferlið að baki frumvarpinu var bæði umfangsmikið og víðtækt og það skiptir máli þegar vanda á til verka. Ég hef lagt mig í líma við að hlusta á ólík sjónarmið og taka tillit til athugasemda. Að mínu mati styrkir það frumvarpið og umhverfi atvinnugreinarinnar til framtíðar. Lagareldi er jú sú atvinnugrein sem vex hvað hraðast innan íslenska matvælageirans og er orðin stór gjaldeyrisskapandi atvinnugrein fyrir þjóðarbúið. Það er mikilvægt að lagareldi nái að þrífast og dafna vel og að greinin hafi tækifæri til vaxtar og verðmætasköpunar en það er mitt mat og sýn ríkisstjórnarinnar að til að svo megi verða þurfi skýrt og vandað regluverk. Það er ekki ofsögum sagt að hingað til hafi regluverkið valdið bæði fyrirtækjum og samfélaginu óvissu og jafnvel orðið til þess að núningur hafi myndast á milli greinarinnar og almennings. Í frumvarpinu er lagt upp með að regluverkið og umgjörðin í kringum þessa mikilvægu atvinnugrein verði eins og best verður á kosið og að við séum bæði að styðja við þá þróun og uppbyggingu sem fyrirséð er að verði í greininni á sama tíma og tekið er á ýmsum álitaefnum sem upp hafa komið undanfarin ár og snúa m.a. að umhverfisvernd, dýravelferð og áhættumati erfðablöndunar. Þannig er það alveg skýrt að ríkisstjórnin styður við sjálfbæra uppbyggingu lagareldis.

Með frumvarpi þessu er lagt til að felld verði úr gildi núgildandi lög um fiskeldi. Í stað þeirra verði settur heildstæður rammi utan um lagareldi þar sem frumvarpið tekur til sjókvíaeldis, landeldis, hafeldis og fjarðabeitar. Með frumvarpinu er því í fyrsta skipti sett umgjörð um þessa þætti og um landeldi, hafeldi og fjarðabeit, þó að meginefni þess snúi að sjókvíaeldinu enda er það sú grein innan lagareldis sem er komin hvað lengst á veg og þar sem regluverkið þarfnast hvað mestra úrbóta.

Það frumvarp sem ég mæli hér fyrir í dag er umfangsmikið og í því eru lagðar til fjölmargar breytingar frá núgildandi löggjöf. Mig langar þó, áður en ég fer yfir helstu breytingar, að ræða hér sérstaklega tiltekin atriði sem lagt er til að verði óbreytt frá því sem nú er. Í fyrsta lagi er það tímabinding rekstrarleyfa sem lagt er til að verði áfram 16 ár. Það er afar mikilvægt atriði í mínum huga enda vandséð hvernig það skapar sátt um atvinnugreinina ef stjórnvöld veita fyrirtækjum aðgang að sameiginlegum auðlindum þjóðarinnar um aldur og ævi. Í öðru lagi langar mig að nefna atriði sem snýr að friðun fjarða fyrir opnu sjókvíaeldi þar sem ekki er lögð til nein breyting frá því hvernig það er í dag. Í þessu frumvarpi er því hvorki lagt til að friða Eyjafjörð, Öxarfjörð né aðra firði. Mín sýn er að slík ákvörðun eigi heima í nærsamfélaginu, hjá sveitarfélögunum og íbúunum sjálfum, og að þetta atriði sérstaklega, hvort friða eigi tiltekna firði frá ákveðinni atvinnustarfsemi, sé eitthvað sem kemur inn í vinnu við strandsvæðaskipulag líkt og var á Vestfjörðum með friðun Jökulfjarða. Nú er vinna við nýtt strandsvæðaskipulag fyrir Norðurland að hefjast þar sem framtíð Eyjafjarðar og Öxarfjarðar verður ákveðin með samfélaginu en ekki án þess. Í þriðja lagi eru framsal, veðsetning og leiga rekstrarleyfa óheimil nema með samþykki Matvælastofnunar og er það óbreytt frá núgildandi löggjöf.

Varðandi þær breytingar sem eru lagðar til í frumvarpinu vil ég fyrst tiltaka einföldun og aukna skilvirkni þegar kemur að stjórnsýslu lagareldis. Þannig er lagt til að í stað þess að gefið sé út rekstrarleyfi annars vegar og starfsleyfi hins vegar verði gefið út eitt sameiginlegt rekstrarleyfi sem nái til þeirra þátta sem nú er fjallað um í rekstrarleyfi Matvælastofnunar sem og í starfsleyfi Umhverfis- og orkustofnunar. Að sama skapi er lagt upp með að gera eftirlit með sjókvíaeldi skilvirkara og er t.d. kveðið á um að Matvælastofnun og Umhverfis- og orkustofnun útbúi og birti sameiginlegar starfsreglur varðandi samræmda framkvæmd eftirlits, en ég kem nánar að því eftirliti hér síðar. Þá vil ég einnig nefna atriði sem ég veit að sveitarfélögin hafa lengi kallað eftir og það er aukin skilvirkni varðandi úthlutanir sem hingað til hafa verið úr Fiskeldissjóði. Í frumvarpinu er lagt til að leggja sjóðinn niður. Sveitarfélögin munu þannig ekki þurfa að sækja sérstaklega um styrki til sérstaks sjóðs heldur mun úthlutun ráðast af fyrir fram skilgreindum viðmiðum. Markmiðið er fyrst og fremst að auka fyrirsjáanleika í fjármögnun sveitarfélaganna en einnig að draga úr miðstýringu enda er það ekki heppilegt fyrirkomulag að mínu mati að þriggja manna stjórn meti innviða- og fjárfestingarþörf ólíkra sveitarfélaga vítt og breitt um landið.

Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á framleiðsluheimildakerfi á frjóum laxi með innleiðingu laxahlutar. Markmið þeirra breytinga er að auka sveigjanleika, nýtingu og fyrirsjáanleika við meðferð á heimildum til eldis á frjóum laxi. Þannig er lagt til að niðurstaða áhættumats erfðablöndunar verði staðfest með útgáfu reglugerðar og verði þar kölluð heildarlaxamagn. Einstök sjókvíaeldisfyrirtæki eiga svo tilkall til ákveðins laxamagns sem er hlutfall af heildarlaxamagni og er sú hlutfallstala laxahlutur. Samkvæmt frumvarpinu má flytja laxahlut á milli smitvarnasvæða að fengnu samþykki Matvælastofnunar en þó er óheimilt að flytja laxahlut á milli landsvæða. Þá er jafnframt óheimilt að flytja laxahlut nema sýnt sé fram á að nægilegt burðarþol sé til staðar þar sem ætlunin er að nýta hlutinn sem og auðvitað að önnur skilyrði til nýtingar séu uppfyllt. Þá er rétt að geta þess að laxahlutur er ekki eign viðkomandi rekstrarleyfishafa heldur í reynd takmörkun, sem á bara við um frjóan lax, á almennu rekstrarleyfi til sjókvíaeldis. Meðferð þeirrar takmörkunar, t.d. með áðurnefndum flutningi milli svæða, framsali eða leigu, er einungis hugsuð til að tryggja sem skilvirkasta nýtingu á heimildum til eldis á frjóum laxi. Samhliða innleiðingu frumvarpsins á hugtakinu laxahlutur er því jafnframt kveðið á um að ónýttur laxahlutur skuli innkallaður að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Hér er hugsunin sú að það sé samfélagslega óhagkvæmt að aðilar sitji á ónýttum laxahlutum og mikilvægt að þeir safni ekki laxahlutum sem þeir nýta ekki enda útilokar slík söfnun réttinda aðra frá eldi á laxi. Að auki gildir það sama um framsal, veðsetningu og leigu laxahlutar og gildir um rekstrarleyfi, þ.e. framsal, veðsetning og leiga er óheimil nema að fengnu samþykki Matvælastofnunar.

Í núgildandi lögum er gjaldtaka af fiskeldi annars vegar í gegnum veltutengt gjald sem er tengt heimsmarkaðsverði, svokallað framleiðslugjald, og hins vegar í gegnum umhverfisgjald sem er föst tala fyrir hvert tonn samkvæmt rekstrarleyfi. Í frumvarpinu nú er lagt til að framleiðslugjald og umhverfisgjald verði sett saman í eitt gjald, framleiðslugjald. Með þessu er lagt upp með meira gagnsæi og einföldun á gjaldaumhverfi og stjórnsýslu sjókvíaeldis. Samkvæmt frumvarpinu er um afkomutengt gjald að ræða á hvert kíló af laxfiski sem byggt væri á meðaltalsútreikningi um rekstrarhagnað rekstrarleyfishafa í sjókvíaeldi. Í frumvarpinu er þannig lagt til afkomutengt framleiðslugjald í stað þess að vera með veltutengt framleiðslugjald. Hér er um að ræða sambærilega aðferðafræði og við þekkjum úr veiðigjöldum í sjávarútvegi, þ.e. sanngjarnt gjald til þjóðarinnar sem endurspeglar á sama tíma afkomu fyrirtækjanna í greininni. Að því sögðu er tryggt í frumvarpinu með svokölluðu grunnframleiðslugjaldi að fyrirtækin greiði alltaf að lágmarki 25 kr. per kíló af lönduðum og slægðum ófrjóum laxi með haus. Markmið álagningar framleiðslugjalds er að tryggja þjóðinni endurgjald af takmörkuðum auðlindum sjávar sem nýttar eru í sjókvíaeldi, standa straum af kostnaði við rannsóknir og eftirlit og stuðla að bættri umgengni við umhverfi og aukinni velferð eldisfiska.

Ég nefndi hér í upphafi að í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er kveðið á um að innleiða skuli hvata til eldis á ófrjóum laxi og til eldis í lokuðum kvíum. Í samræmi við það eru margvíslegir hvatar lagðir til í frumvarpinu, til að mynda að framleiðslugjald innifeli hvata til að taka upp framleiðsluaðferðir sem draga úr þeirri kerfislegu áhættu sem er fólgin í því að ala fisk í opnum sjókvíum. Í því sambandi má m.a. benda á hvata til að innleiða lokaðan eldisbúnað, eldi á ófrjóum laxi, útsetningu stærri seiða, hvata til að stytta eldistíma í sjókvíum og hvata til nýtingar annarra tæknilausna sem eru ekki sérstaklega útlistaðar í frumvarpinu en hafa sama tilgang. Þannig er í frumvarpinu lagt til vægara áhættumat fyrir lokaðan búnað sem og skemmri hvíldartíma svæða og skertan laxahlut sé notaður lokaður búnaður. Auk þessa skal við mat á tilboðum er úthluta á smitvarnasvæði m.a. skoða hvernig tilboðsgjafi hyggst stunda reksturinn, m.a. út frá umhverfis- og dýravelferðarsjónarmiðum. Með þessu móti er tekið tillit til nýjunga sem eru ekki endilega augljósar en kunna að skila bættri umgengni og aukinni dýravelferð. Umhverfishvatar fela í sér hagræna hvata til fjárfestinga í búnaði, þekkingu og þróun lausna sem flýta fyrir notkun á framleiðsluaðferðum sem stuðla að bættri umgengni um umhverfi og aukinni dýravelferð. Þar má nefna minna lífrænt álag og minni hættu á stroki ásamt minni afföllum. Markmiðið er þannig að veita rekstraraðilum fjárhagslegt svigrúm til að standa undir fjárfestingum og þróunarkostnaði.

Fleiri viðamiklar breytingar eru lagðar til í frumvarpinu sem snúa að umhverfisvernd og dýravelferð. Þar á meðal eru breytingar sem snúa að burðarþolsmati annars vegar og áhættumati erfðablöndunar hins vegar. Þetta eru þau tvö meginstjórntæki sem notuð eru til að meta þolmörk náttúrunnar gagnvart eldi og eru þau á ábyrgð Hafrannsóknastofnunar. Burðarþolsmat segir til um þann hámarkslífmassa sem heimilt er að ala á ákveðnu svæði án þess að óásættanleg áhrif á umhverfið hljótist af. Í frumvarpinu er það nýmæli að burðarþolsmat skuli sett fram með tvennum hætti, annars vegar sem tiltekið hámark á lífmassa á hverjum tíma og hins vegar sem hámark lífmassa samkvæmt hlaupandi 12 mánaða tímabili. Með þessari breytingu næst að endurspegla betur hvernig raunverulegur eldisferill gengur fyrir sig. Rekstrarleyfishafar munu svo geta valið þarna á milli. Þá er það nýmæli í frumvarpinu að Hafrannsóknastofnun skuli annars vegar setja fram burðarþolsmat með tilliti til hefðbundinna sjókvía og hins vegar til hálflokaðs eða lokaðs búnaðar. Með þessu er hugsunin að undirstrika betur kostina sem slíkur búnaður hefur fram að færa umfram það sem hefðbundið er, eins og ég minntist á hér áðan varðandi hvatana sem lagðir eru til í frumvarpinu.

Áhættumat erfðablöndunar felur í sér aðferðafræði sem miðar að því að finna það hámark frjós lax sem óhætt er að ala í sjó á tilteknu hafsvæði án þess að líkur séu á óásættanlegri erfðablöndun og skal matið byggja á varúðar- og vistkerfisnálgun. Áhætta er metin með líkani Hafrannsóknastofnunar sem gerir tillögu til ráðherra um hámark frjórra laxa mælt í lífmassa sem heimilt er að ala í sjó hverju sinni á tilteknu hafsvæði.

Frú forseti. Ég sé að ég er hér búin með tímann en mér var tjáð að ég fengi lengri tíma þar sem ég er að ræða tvö mál.

(Forseti (BHar): Forseti hafði einmitt spurst fyrir um það hjá þingfundaskrifstofu og svarið við því var að svo væri ekki. Það þýðir fyrir bæði ráðherra og alla þingmenn að hér sé bara um einfaldan ræðutíma að ræða. Ég bið þingfundaskrifstofu um að bregðast við ef ég er að fara rangt með mál.)

Þá er spurning, í ljósi þess að hv. þingmenn sem taka þátt í umræðunni geta brugðist við, hvort ég fái leyfi í þingsal til að stíga úr stólnum og vera síðan fyrst á mælendaskrá á eftir til að klára ræðuna. Annars læt ég þetta í hendurnar á forseta.

(Forseti (BHar): Hæstv. ráðherra getur tekið oftar til máls en einu sinni í 1. umræðu. Hún hefur í rauninni tækifæri til að taka til máls oftar en tvisvar, þannig að það eru auðvitað frjálst. En það hefur verið óskað eftir andsvörum við hæstv. ráðherra. — Nú biðst forseti afsökunar á því að hér hafi klukkan verið stillt á 15 mínútur en það hefðu átt að vera 30 mínútur. )

Takk, frú forseti. Það er spurning hvort ráðherrann byrji upp á nýtt og tali þá á þeim hraða sem eðlilegt væri að tala því að ég talaði mjög hratt. En ég ætla að hlífa fólki við því og held þá áfram með áhættumat erfðablöndunar. Ég held að ég hafi verið búin með þennan kafla en ætla engu að síður að fara yfir hann aftur. Áhættumat erfðablöndunar felur sem sagt í sér aðferðafræði sem miðar að því að finna það hámark frjós lax sem óhætt er að ala í sjó á tilteknu hafsvæði án þess að líkur séu á óásættanlegri erfðablöndun og skal matið byggja á varúðar- og vistkerfisnálgun. Áhættan er metin með líkani Hafrannsóknastofnunar sem gerir tillögu til ráðherra um hámarksmagn frjórra laxa mælt í lífmassa sem heimilt er að ala í sjó hverju sinni á tilteknu hafsvæði. Í frumvarpinu er annars vegar lögð til sú breyting að áhættumat erfðablöndunar verði ekki sett fram fyrir hvern fjörð fyrir sig, líkt og gert er í dag, heldur verði það gert fyrir landsvæði. Þannig væri til að mynda eitt áhættumat fyrir Vestfirði og annað áhættumat fyrir Austfirði. Hins vegar er svo lögð til sú breyting að tillaga Hafrannsóknastofnunar verði ekki lengur bindandi fyrir ráðherra frekar en önnur ráðgjöf sem frá Hafrannsóknastofnun kemur, eins og við þekkjum t.d. þegar kemur að ráðgjöf hvað varðar leyfilegan heildarafla í einstökum tegundum nytjastofna sjávar. Það er enda mikilvægt að Hafrannsóknastofnun komi með sína sjálfstæðu, óháðu vísindalegu ráðgjöf en sé ekki að taka stjórnvaldsákvarðanir. Þá er jafnframt talið eðlilegt, líkt og rakið er í greinargerð frumvarpsins, að ráðherra hafi svigrúm til þess að taka tillit til fleiri þátta en Hafrannsóknastofnun gerir, svo sem félagslegra, samfélagslegra og fjárhagslegra þátta eða ef ráðherra vill jafna sveiflur í áhættumati yfir lengri tíma.

Þá er í frumvarpinu lagt til að farið verði í kerfisbundna vöktun á ám og vötnum og er hér um að ræða nýmæli í löggjöf um fiskeldi. Hér erum við að horfa til þess að vera með viðvarandi kerfisbundna vöktun á stöðu lífríkisins sem bætir bæði vísindalega þekkingu og viðbragðstíma stofnana ef þörf krefur. Hugsunin er sú að við séum að fara í forvirkar aðgerðir í stað þess að vera í viðbrögðum eftir á. Þetta leiðir til meiri þekkingar á fjölda villtra laxa, á fjölda óæskilegra tegunda á borð við hnúðlax og fjölda eldislaxa, auk þess sem þetta styður við líffræðilegan fjölbreytileika. Þetta er í mínum huga mjög mikilvægur þáttur þegar horft er á stóru myndina í þessu frumvarpi varðandi lífríki Íslands.

Áhættustýrt skipulag með innleiðingu smitvarnasvæða er önnur stór breyting sem felur það í sér í grundvallaratriðum að hver fjörður mun verða smitvarnasvæði og mun einn rekstraraðili starfa á hverju smitvarnasvæði og bera ábyrgð á ástandi þess. Markmiðið með breytingunni er að draga úr áhættu og takmarka útbreiðslu sjúkdóma og sníkjudýra milli einstakra hafsvæða. Eins og alþekkt er þá eru slík frávik í rekstri alvarleg út frá dýravelferðarsjónarmiðum og einnig varðandi verðmætasköpun þar sem þau leiða til aukinna affalla og valda rekstraraðilum fjárhagslegu tjóni sem og þeim samfélögum sem reiða sig á sjókvíaeldi. Ákvæðin um smitvarnasvæði eru að færeyskri fyrirmynd en sú leið var farin í Færeyjum að setja upp smitvarnasvæði eftir að algjört hrun varð í færeysku fiskeldi og eru smitvarnasvæði afar mikilvægt atriði þegar litið er til dýra- og umhverfissjónarmiða. Í Færeyjum hefur tekist vel að byggja upp grein sem hefur vaxið með breyttri nálgun til smitvarna.

Eins og ég kom inn á áðan er tímabinding rekstrarleyfa áfram 16 ár samkvæmt frumvarpinu. Í dag er regluverkið varðandi afturköllun rekstrarleyfis á þann hátt að ávallt þarf að veita áminningu áður en leyfi er afturkallað. Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar í þessum efnum þannig að hægt verður að afturkalla rekstrarleyfi án áminningar ef um sérstaklega alvarlegt brot eða ítrekað alvarlegt brot er að ræða. Þegar til endurnýjunar rekstrarleyfis sjókvíaeldis kemur ber Matvælastofnun samkvæmt frumvarpinu að fara yfir frammistöðu rekstraraðila frá útgáfu gildandi leyfis. Ef niðurstaða matsins er að aðilar hafi gerst sekir um fjögur brot eða fleiri án þess að ráðist hafi verið í úrbætur er Matvælastofnun heimilt að endurnýja ekki leyfið. Eru þetta nýmæli frá gildandi lögum. Þannig er lagt til að tekið verði upp punktakerfi vegna brota á lögum og reglum sem gilda um opið sjókvíaeldi og samhliða er hert verulega á eftirliti Matvælastofnunar á rekstrarleyfistímanum. Sem dæmi um auknar eftirlitsheimildir má nefna að stofnuninni verður m.a. veitt heimild til að framkvæma óboðað eftirlit og krefjast tíðari skýrslugjafar, auk þess sem allur flutningur á fiski milli sjókvíaeldisstöðva innan smitvarnasvæðis verður háður tilkynningum til stofnunarinnar.

Í sérstökum kafla frumvarpsins er fjallað um strok. Lagt er bann við stroki og tekinn af allur vafi um að strok sé ekki hluti af almennum rekstri sjókvíaeldis, eitthvað sem er ekki skýrt í núgildandi löggjöf. Í frumvarpinu er lögð áhersla á að koma í veg fyrir að alvarlegir strokatburðir verði, m.a. með því að efla eftirlit, líkt og ég rakti hér áðan, og með því að innleiða aðgerðir á borð við kerfisbundna vöktun í ám. Eftir sem áður þykir nauðsynlegt að til séu skýrir og samræmdir ferlar um það hvernig bregðast skuli við ef strokatburður verður. Gert er ráð fyrir því að um leið og upplýsingar liggi fyrir um umfang og eðli stroks taki Matvælastofnun ákvörðun um hvort nauðsynlegt sé að hún eða verktakar á hennar vegum ráðist í aðgerðir í veiðiám eða vötnum. Matvælastofnun og Fiskistofa verða með sameiginlegar fyrir fram ákveðnar viðbragðsáætlanir sem veiðifélög eða veiðiréttarhafar geta stuðst við þegar strokatburður verður. Með þessum hætti er betur tryggt að veiðifélög fái greiddan kostnað sem þau verða fyrir ef kemur til stroks. Að auki er lögð til veruleg hækkun á stjórnvaldssektum, þar með talið ef rekstraraðili tilkynnir ekki um strokatburð, og gæti sektin numið allt að hálfum milljarði kr. samkvæmt frumvarpinu.

Eitt af nýmælum frumvarpsins er sérstakur kafli um afföll en afföll eru dauði eldisfisks í eldiseiningum eða í sjó. Til affalla telst einnig förgun á fiski vegna sárasjúkdóma og sníkjudýra. Um stórt skref er að ræða frá gildandi lögum þar sem ekkert er tekið á afföllum og í raun er það svo að verði frumvarpið að lögum er Ísland fyrsta landið í heiminum til að setja takmörk á afföll í opnu sjókvíeldi. Samkvæmt frumvarpinu skal draga 10% af fjölda útsettra seiða vegna væntrar skekkju í talningartækjum og væntra affalla. Gildistökuákvæði gerir þó ráð fyrir niðurtröppun affalla á fjórum árum og er fyrst um sinn miðað við 20% vænt afföll. Affallagjaldið verður 100 kr. fyrir hvern fisk. Tökum dæmi: Út í eina kví fara 100.000 seiði en upp úr henni koma 72.000 fiskar. Miðað við 10% vænt afföll greiðist affallagjald þá af 18.000 fiskum. Sé tekið mið af niðurtröppun í gildistökuákvæði og þá miðað við 20% vænt afföll greiðist affallagjaldið af 8.000 fiskum í fyrrnefndu dæmi. Varðandi það hvernig hlutfallstalan er fengin út er litið til reynslunnar í atvinnugreininni eins og hún er núna, hvar við erum stödd í dag og hvert við viljum fara á sama tíma og við þurfum að vera með raunhæfar lausnir við því vandamáli sem afföll hafa verið.

Í þessu frumvarpi er í fyrsta sinn fjallað sérstaklega um landeldi en gríðarlegur vöxtur hefur verið í þeim anga lagareldis undanfarin ár. Í landeldi er fiskur framleiddur í lokuðum kerjum á landi og er vistkerfisáhættan því önnur en í opnu sjókvíeldi. Frumvarpið myndar ramma utan um þessa ört vaxandi grein en horft er til þess að uppbygging í landeldi og þar með framleiðsla er almennt skemur á veg komin en í opnu sjókvíeldi. Þá er jafnframt í fyrsta sinn með frumvarpinu settur rammi um annars vegar hafeldi, en með hafeldi er átt við lagareldi á hafsvæðum utan fjarða þar sem hefðbundið sjókvíeldi er stundað, og hins vegar fjarðabeit, sem tæknilega séð er ekki fiskeldi enda er fiskurinn ekki fóðraður með beinum hætti heldur er þess í stað komið fyrir ljósum í neðansjávarbúrum og ljósáta löðuð að búrinu. Það eru mikil tækifæri í þessum greinum lagareldis og nauðsynlegt að setja skýra umgjörð um tilraunaleyfi og rannsóknir í þeim.

Frú forseti. Enn eru miklar fjárfestingar í lagareldi og líklega þarf að bíða í nokkur ár þar til greinin fer að skila jafn miklu til þjóðarbúsins og t.d. sjávarútvegur. Greinin þarf því að fá tíma til að vaxa og þróast og frumvarpið tekur svo sannarlega tillit til þess. Frumvarpið tekur líka á lykilþáttum á borð við verðmætasköpun og byggðafestu, umhverfisvernd og dýravelferð, nýsköpun og framþróun og er til þess fallið að tryggja fyrirsjáanleika fyrir greinina um leið og tekið er á ýmsum álitamálum sem upp hafa komið síðastliðin ár af festu. Þá vil ég vekja athygli þingheims á því að í frumvarpinu er ákvæði um að lögin skuli endurskoðuð árið 2030 að undanskildum þeim kafla sem fjallar um landeldi. Slíkt endurskoðunarákvæði er mikilvægt, m.a. vegna tækniþróunar í greininni og nýrrar útfærslu gjaldtöku sem lögð er til þannig að hægt sé að meta áhrif lagasetningarinnar og hvort hún sé að skila tilætluðum árangri.

Þá vil ég fara hér næst yfir frumvarp til laga um breytingu á lögum um lax- og silungsveiði, lögum um fiskrækt og lögum um Fiskræktarsjóð. Eins og ég rakti áðan er hætta á erfðablöndun af eldi frjós lax í sjókvíum. Erfðablöndun villtra íslenskra laxastofna er þó einnig áhættuþáttur í fiskrækt og ýmis atriði sem koma til skoðunar, svo sem uppruni, gæði og fjölbreytileiki þess erfðaefnis sem notast á við í fiskrækt. Ef notað er erfðaefni úr fiskum sem eru sjálfir blendingar af villtum stofnum og eldisstofnum þá er ljóst að það getur haft áhrif til erfðablöndunar í villtum laxastofnum.

Drög að frumvarpinu voru birt í samráðsgátt stjórnvalda þann 22. desember sl. og að loknum umsagnarfresti, sem var fjórar vikur, bárust alls 10 umsagnir sé litið fram hjá þeim umsögnum sem vörðuðu frumvarp um lagareldi og var skilað inn sem umsögnum um það frumvarp.

Fiskrækt á Íslandi hefur verið stunduð af landeigendum, veiðiréttarhöfum og leigutökum um árabil og verið ríkur þáttur í starfsemi þessara aðila við nýtingu lax- og silungsveiðihlunninda og var um hríð reyndar áskilin með lögum. Fiskrækt er stunduð með flutningi á fiskum af hvaða þroskastigi sem er í veiðivatn eða innan veiðivatns til að fjölga fiskum þar. Meginmarkmið þessa frumvarps er að fiskrækt í ám og vötnum skuli ávallt framkvæmd með ábyrgum og sjálfbærum hætti í samræmi við varúðarnálgun og með þarfir vistkerfa í huga. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir því að allar fiskræktaráætlanir, sem eru forsenda fyrir allri fiskrækt, verði birtar opinberlega og er ætlunin að styrkja allt eftirlit frá því sem nú er. Þá er jafnframt gert ráð fyrir því að innihald og efnistök nýtingaráætlana verði bætt og allt utanumhald með þe im verði eflt. Í frumvarpinu er til að mynda kveðið á um að nýtingaráætlanir skuli miðast við að nýting fiskstofna sé sjálfbær samkvæmt viðurkenndum líffræðilegum viðmiðum og að slíkar áætlanir skuli birtar opinberlega.

Með frumvarpinu er ætlunin að skerpa á ákvæðum fiskræktar og bregðast við þeim áskorunum og ábendingum sem hafa komið fram á síðustu árum og skapa þannig skilyrði fyrir ábyrgri fiskrækt í íslenskum ám og vötnum. Einnig er frumvarpinu ætlað að koma betur til móts við alþjóðlegar skuldbindingar sem Ísland hefur undirgengist, einkum eftir að aðild að Norður-Atlantshafslaxverndarstofnuninni, NASCO, var nýverið endurnýjuð. Þótt þetta frumvarp mæli hvorki fyrir banni við fiskrækt né setji verulegar takmarkanir á heimildir til slíkrar starfsemi umfram það sem kemur fram í núgildandi lögum er ljóst að frumvarpið herðir á ýmsum skilyrðum varðandi fiskrækt, auk þess að gera brot á lögum um fiskrækt refsivert sem er nýmæli.

Ég vil við þetta tækifæri einnig minnast á að með frumvarpinu er lögð til breyting á lögum um lax- og silungsveiði hvað varðar fiskteljara og aðgang Fiskistofu að gögnum og slíkum búnaði en þeirri breytingu er m.a. ætlað að styðja við ákvæði frumvarps til laga um lagareldi sem áður var minnst á.

Frú forseti. Að endingu vil ég minnast á að frumvarpinu er einnig ætlað að bregðast við þeirri vaxandi ógn sem stafar af hnúðlaxi í íslenskum laxveiðiám og því álagi sem hann leggur á villta íslenska laxastofna. Til skamms tíma hefur verið í gildi bráðabirgðaákvæði við lög um lax- og silungsveiði sem gerir yfirvöldum, veiðiréttarhöfum og leigutökum mögulegt að stemma stigu við útbreiðslu hans eins og kostur er. Með þessu frumvarpi eru sett varanlegri ákvæði hvað þetta varðar enda hefur reynslan ekki gefið ástæðu til annars en að ætla að útbreiðsla og ágengni hnúðlax geti verið til vandræða á Íslandi sem og annars staðar.

Þá hef ég lokið máli mínu og að loknum þessum umræðum legg ég til að frumvörpunum báðum verði vísað til 2. umræðu og hv. atvinnuveganefndar.