157. löggjafarþing — 87. fundur,  23. mars 2026.

lagareldi.

529. mál
[16:41]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. ráðherra fyrir framsöguna hér á tveimur mikilvægum og, að ég tel, bara nokkuð þokkalegum málum. Ég held að það verði áhugavert fyrir okkur að glíma við þau síðan í framhaldinu. Ég hjó eftir því í ræðu hjá hæstv. ráðherra þegar komið var inn á smitvarnasvæðin að það væri einungis eitt smitvarnasvæði í hverjum firði. Mig minnir, frú forseti, að þegar við vorum að eiga við svipað frumvarp hér fyrir nokkru síðan hafi sömuleiðis verið tekið tillit til stærðar fjarðar. Í því samhengi vil ég nefna Arnarfjörð og Ísafjarðardjúp. Í þeim tillögum sem við vorum að ræða voru fleiri smitvarnasvæði innan þessara gríðarstóru fjarða. Því langar mig að beina því til hæstv. ráðherra hvort hér sé um misskilning að ræða hjá þeim sem hér stendur eða hvort ráðherra leggi upp með að Arnarfjörður sé bara eitt smitvarnasvæði og sömuleiðis Ísafjarðardjúp.