lagareldi.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Þórarni Inga Péturssyni fyrir andsvarið. Það er rétt, þetta var rætt fyrir tveimur árum síðan þegar málið var síðast hér. Af því að fiskeldið er, eins og við þekkjum, atvinnugrein sem er í fullum rekstri núna, fyrirtæki deila með sér ákveðnum svæðum á Vestfjörðum, þá er staðan sú að til að byrja með þurfum við að fara af stað með fleiri en eitt smitvarnasvæði í hverjum firði. En markmiðið er að það verði bara eitt í hverjum firði enda náum við þannig markmiðum og tryggjum umhverfisverndina betur með því að tryggja að svo sé. Það er líka eðlilegra fyrir þessi fyrirtæki sem eru í góðum rekstri að slys eða slóðaskapur hjá einu fyrirtæki hafi ekki áhrif á starfsemi þess næsta. Þannig að þetta er mikilvægt, bæði fyrir náttúruna og fyrir þau fyrirtæki sem um ræðir eins og staðan er akkúrat núna, eins og þróunin hefur verið. En ég bind vonir við að lagasetningin, þar sem þessir hvatar eru til staðar, leiði til þess að fyrirtækin endi eitt í hverjum firði.