157. löggjafarþing — 87. fundur,  23. mars 2026.

lagareldi.

529. mál
[16:45]
Horfa

atvinnuvegaráðherra (Hanna Katrín Friðriksson) (V) (andsvar):

Frú forseti. Aftur þakka ég andsvarið. Það er alveg ljóst að við erum hér að feta millistigið á milli þess að tryggja umhverfisverndina og dýravelferðina eins og hægt er og smitvarnasvæðin eru mikilvægur þáttur í því, líkt og við þekkjum frá Færeyjum. Að sama skapi verðum við að gæta þess að setja ekki einmitt rekstrargrundvöll þessara fyrirtækja í einhverja óvissu og það er markmiðið. Þetta er eitt af þeim málum, af því að ég nefndi að það væri endurskoðunarákvæði í frumvarpinu árið 2030, sem við viljum láta raungerast og sjá hvernig unnið er með. Fyrirtækin ná mögulega tökum á þessu sjálf en markmiðið er þetta til framtíðar: Að nota smitvarnasvæðin til að tryggja þessa þætti; umhverfisverndina og dýravelferðina, en gæta jafnframt að rekstrarsjónarmiðum fyrirtækja.