157. löggjafarþing — 87. fundur,  23. mars 2026.

lagareldi.

529. mál
[16:46]
Horfa

Snorri Másson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir framsögu um þessi umfangsmiklu mál. Hér er um að ræða risavaxið frumvarp sem tekur á öllum öngum málsins og viðbrögðin eru strax í upphafi, eins og maður sá í umfjöllun í samráðsgáttinni, mjög blönduð, alveg eftir því úr hvaða átt menn eru að koma, af hvaða landsvæðum, hvort menn hafi hagsmuni af veiðirétti og öðru eins eða hvort menn hafi ríka hagsmuni af þessari uppbyggingu. Ég hefði áhuga á að vita það frá hæstv. ráðherra, því það vekur einfaldlega forvitni mína í upphafi þessarar umræðu hvernig — rétt eins og maður talar um að þetta hafi verið umdeilt meðal almennings og hæstv. ráðherra talar um þennan núning á milli greinarinnar og almennings. Það er líka núningur um staðreyndir málsins, um það hver áhrif laxeldis í opnum sjókvíum eru á villta laxastofninn, sem er auðvitað stóra spurningin í náttúruverndarþætti þessa máls. Hver telur hæstv. ráðherra að þessi áhrif hafi verið eftir því sem ráðherra hefur kynnt sér málið hingað til, áhrif af opnum sjókvíum á villta stofninn? (Forseti hringir.) Er einhver ákveðin heimild eða eitthvert efni sem hæstv. ráðherra hefur stuðst við í því mati ráðuneytisins?