157. löggjafarþing — 87. fundur,  23. mars 2026.

lagareldi.

529. mál
[16:48]
Horfa

atvinnuvegaráðherra (Hanna Katrín Friðriksson) (V) (andsvar):

Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna og hann kemur auðvitað að kjarna máls. Þetta hefur verið atvinnugrein sem hefur verið á milli tannanna á fólki af ýmsum ástæðum. Sumum þeirra eiga þau fyrirtæki sem starfað hafa í greininni sök á sjálf vegna atburða. Annað hefur verið vegna þess að við höfum farið af stað með atvinnugrein sem skiptir miklu máli fyrir ákveðin landsvæði og fyrir þjóðarbúskapinn en hefur setið kannski eftir með það að tryggja henni skýran lagaramma eins og verið er að gera núna. Það liggur bara fyrir. Það er Hafrannsóknastofnun sem smíðar þetta áhættumat erfðablöndunar og leggur mat sitt á það hvað sé ásættanlegt. Þar er bara vísindafólk sem vinnur náið með þessa hluti. Við erum líka með sérfræðinga í ráðuneytinu, við erum með sérfræðinga hjá Matvælastofnun þannig að þetta er mál sem hefur þróast mjög vel innan þeirra stofnana sem málið varðar. En varðandi akkúrat það hver áhættan er þá þekkjum við auðvitað að það er eitthvað til sem heitir erfðablöndun og hefur áhrif á villta laxinn. En þess vegna, líkt og ég kom inn á í ræðu minni, er svo mikilvægt að þessi kerfisbundna vöktun eigi sér stað þannig að við áttum okkur á því hvað nákvæmlega megi rekja til fiskeldis og hvað megi rekja til annarra þátta, (Forseti hringir.) fara í forvirkar aðgerðir. Ég verð að fá að koma með nánara svar í seinna andsvari.