157. löggjafarþing — 87. fundur,  23. mars 2026.

lagareldi.

529. mál
[16:52]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir framsöguna. Það er kannski tvennt hérna í fyrstu atrennu sem mig langar til að ræða við hæstv. ráðherra. Í fyrsta lagi er það umfang málsins og tímasetning. Ég óttast að okkur verði á endanum nokkuð knappur tími til ráðstöfunar, en það eru eftir 30 þingfundardagar eftir daginn í dag á þessu þingi samkvæmt starfsáætlun. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra hvort hann sjái fyrir sér að það sé kostur, ef þrengir þannig að að ekki sé útséð um að málið geti klárast, hvort það sé ástæða til að hv. nefndin horfi til þess að klára hluta málsins, hver þátturinn sem það væri, bara þannig að nefndin geti hagað sinni vinnu þannig frá byrjun að það sé möguleg niðurstaða.

Hitt atriðið sem ég vil spyrja hæstv. ráðherra út í er þetta sem varðar affallagjaldið. Hæstv. ráðherra orðaði það þannig að Ísland væri með þessu frumvarpi fyrsta landið til að setja þak á afföll. Þetta er svona einhvers lags skattlagning á tjón sem ég kem ekki alveg heim og saman við að sé mögulega skynsamlegt. (Forseti hringir.) Gæti verið ástæða fyrir því að Ísland sé fyrsta landið sem leggur til þessa nálgun hvað varðar skattlagningu á tjóni?