lagareldi.
Ég þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni fyrir fyrirspurnina. Varðandi möguleikann á að vinna málið í einhverjum hlutum þá myndi ég telja það illmögulegt. Þetta er þannig samofið. Það sem við erum að reyna að gera er að mynda heildstæðan ramma, þannig að nái þingið ekki að klára þetta mál þá held ég að það sé bara eins og það er, því miður.
Síðan varðandi spurningu um skattlagningu á tjóni þá er það alþekkt að fyrirtæki sem valda tjóni sæti sektum (Gripið fram í.) og hv. þingmaður hlýtur að vera sammála mér um það. Þú ert að tala um gjaldið á afföll af fiski? Akkúrat. (BergÓ: Það er ekki skilgreint sem sekt.) Nei, það er ekki skilgreint sem sekt og ekki heldur sem skattur. Það er skilgreint sem gjald. En ég get kallað þetta sekt, ef hv. þingmanni líður betur með það. Þetta er auðvitað vegna þess að þarna er verið að setja fjárhagslega hvata svo fyrirtæki geti, með einhverjum þeim hætti þannig að þau ráði sjálf við það, komið í veg fyrir að þessi afföll verði. Það eru einhver vænt afföll, það eru alltaf afföll í allri matvælaframleiðslu og það er eðlilegur skilningur á því. Afföllin eru í kringum 20% í dag. Við viljum sjá þau vera 10% af því að við viljum byggja strangan lagaramma. (Forseti hringir.) Afföll geta að öðru leyti bara snúist um að það hafi ekki (Forseti hringir.) verið hugsað nægilega vel um fiskinn, að það hafi verið slegið slöku við einhverjar þær varúðarráðstafanir sem við gerum kröfur um að eigi sér stað þegar um er að ræða eldi (Forseti hringir.) í opnum sjókvíum. Ég tel þetta skynsamlegt.
(Forseti (BHar): Forseti beinir því til hæstv. ráðherra og hv. þingmanna að beina orðum sínum til hæstv. forseta og virða ræðutímann.)