lagareldi.
Frú forseti. Aftur þakka ég andsvarið. Ég er í grunninn alveg sammála, sérstaklega þegar um er að ræða atvinnugreinar sem eru á sínum upphafsskrefum. Það er ekki síst þess vegna sem í þessu frumvarpi er lögð til umtalsverð lækkun á skatti á fyrirtækin þar sem verið er að breyta skatti úr þeim veltutengda, sem hann hefur verið undanfarin ár, eða frá upphafi, yfir í afkomutengdan skatt, sem þýðir þá eðli málsins samkvæmt að fyrirtæki sem eru að stíga sín fyrstu skref í fjárfestingarfrekum iðnaði greiða lágmarksgjald á meðan þau eru að koma undir sig fótunum. Það er akkúrat það sem við erum að gera með þessu frumvarpi.
Síðan varðandi það sem hv. þingmaður spyr um, ef ég skil hann rétt, hvort sektir á einhverja atburði, sem kunna að verða, búi til einhvern freistnivanda fyrir fyrirtækin til að tilkynna það ekki … (Gripið fram í.) Það var ekki spurningin? Þannig að það var skattlagningin fyrst og fremst? (BergÓ: Það var skattlagningin fyrst og fremst. )Akkúrat. Ég var annars með mjög gott svar við þessari ímynduðu spurningu líka. (Gripið fram í.) Ég á það inni. Það er þannig, ég er bara sammála. En að sama skapi er það markmiðið að þegar fyrirtækin hafa náð góðum rekstri í sjálfbæru eldi þá greiði þau (Forseti hringir.) sinn hluta til þjóðarinnar líkt og aðrar atvinnugreinar sem nýta náttúruauðlindir okkar.