lagareldi.
Frú forseti. Ég þakka andsvör í fjórum liðum frá hv. þingmanni. Varðandi skattinn, svo ég byrji á því, þá bara þekki ég það ekki nákvæmlega, þetta er mismunandi löggjöf. Auðvitað horfum við ekki síst til Noregs og Færeyja, nágrannalanda okkar þar sem menn eru á fullri ferð. Það eru bara önnur flóknari atriði, þar kemur peningur inn í gegnum útboð og annað slíkt. Þetta er svolítið erfitt með atvinnugrein sem er komin á fullt eins og sjókvíaeldi þrátt fyrir allt er, þannig að skrefið sem ég kaus að fara og við fórum var að breyta þessu þannig að gjaldið lækkaði til muna á upphafsskrefunum sem þessi fyrirtæki eru að stíga. En það er alltaf hollt að skoða skattlagningu á fyrirtæki og samspil og þau áhrif sem það hefur á möguleika þeirra til að vaxa og dafna, þannig að það er bara viðvarandi verkefni.
Ég er hjartanlega sammála hv. þingmanni. Við þurfum ekki bara að setja lög heldur þarf framkvæmdin líka að vera í lagi. Það er verið að styrkja Matvælastofnun í því skyni, til að geta haft nákvæmlega eftirlit með þessu. Það er ekki bara lagaramminn sem skiptir máli heldur líka hvað gerist ef eitthvað bjátar á. (Forseti hringir.) Það er líka verið að horfa til þess að styrkja veiðiréttarhafa, m.a. með því að þeir fái fjármagn til að fara í ákveðnar aðgerðir og með því að stjórnvöld eru að taka á sig ákveðnar aðgerðir þar líka. — Erlenda eignarhaldið verður að bíða.