157. löggjafarþing — 87. fundur,  23. mars 2026.

lagareldi.

529. mál
[17:02]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka svarið. Auðvitað er erfitt fyrir okkur að ræða þetta á dýptina á nokkrum sekúndum og við gerum það auðvitað ekki. En ég held að það skipti mjög miklu að við förum vel yfir þetta mál því að það er í miklum skotgröfum. Það eru mjög misvísandi upplýsingar sem koma til almennings. Ég held t.d. að þegar kemur að framkvæmdinni — og það á ekki bara við um fiskeldi heldur í rauninni líka lax- og silungsveiði — og að eftirliti og þegar menn brjóta af sér þá er það ekki í lagi. Maður heyrir að þeir sem eru þeim megin í tilverunni að hafa áhyggjur af lífríkinu hafa mjög miklar áhyggjur af þeim þætti og það er augljóst af umsögnum að þar eru miklar áhyggjur. Það er mjög vont að hafa þessar miklu deilur. Það væri auðvitað best ef við værum með fyrirkomulag sem við gætum treyst, bæði varðandi lagaumgjörð og sömuleiðis framkvæmd eftirlits. Sömuleiðis segir það sig sjálft og við þekkjum það að þær þjóðir sem standa sig best í umhverfismálum (Forseti hringir.) eru með öfluga aðila eins og við í íslenskum sjávarútvegi, við erum þar til fyrirmyndar en það er vegna þess að þar eru líka stöndug fyrirtæki. (Forseti hringir.) Af því að hæstv. ráðherra kemur upp aftur: Gæti ráðherra aðeins farið á dýptina varðandi það af hverju ekki er hægt að hafa sólarlagsákvæði um ófrjóan fisk og kvíarnar, ef hann nær því á einni mínútu?