lagareldi.
Frú forseti. Ég þakka andsvarið. Ég ætla bara aðeins að fá að segja varðandi lagareldið og skattlagningu að við erum, þegar allt er tekið saman, með þessari breytingu, með sambærilega skatta og samkeppnislönd okkar. En ég árétta að þetta má alltaf skoða. Ástæðan fyrir því að það er erfitt að setja þetta sólarlagsákvæði er að við getum ekki séð nákvæmlega fyrir hvenær þessi atriði koma, hvenær við erum komin með fjöldaframleiðslu á ófrjóum seiðum, komin með ófrjóan lax. Þetta er búið að vera innan seilingar töluvert lengi. Fjögur til fimm ár, segja menn, en það var líka sagt kannski fyrir fjórum til fimm árum. Lokaðar kvíar eru komnar töluvert langt á veg. Það hefur ekki verið prófað hér nægilega við Íslandsstrendur en við þurfum einhvern veginn að ná tökum á þessu og rétta leiðin að mínu mati er að innleiða þessa fjárhagslegu hvata þannig að fyrirtæki sjái sér hag í því að prófa sig áfram með það. Vonandi verður sú niðurstaða til þess að innan ekki langs tíma verðum við komin með sjókvíaeldi í lokuðum kvíum og með ófrjóan fisk. Það er auðvitað markmiðið. En þangað til erum við að styrkja lagarammann á þennan hátt, (Forseti hringir.) tryggja umhverfisverndina eins og við getum í núverandi kerfi og tryggja dýravelferð en jafnframt skapa ramma fyrir fyrirtækin til að geta vaxið og dafnað.