157. löggjafarþing — 87. fundur,  23. mars 2026.

lagareldi.

529. mál
[17:06]
Horfa

Jón Gunnarsson (S):

Virðulegur forseti. Það er nú ástæða til að nefna, út af því sem hér er á undan gengið í þessu máli og að það sé á dagskrá og síðan ótakmarkaður fundartími inn í kvöldið ef svo ber undir, að nú er klukkan farin að ganga sex og hæstv. ráðherra var að mæla fyrir málinu og þurfti til þess drjúgan tíma, enda málið umfangsmikið og flókið. Þess vegna vil ég bara koma hvatningarorðum aftur til virðulegs forseta um það að við höldum áfram á morgun við að klára þetta mál. Ég hef enga trú á því að menn þurfi að hafa einhverjar áhyggjur af því.

Fiskeldi á sér nokkuð langa sögu á Íslandi. Það var svolítið brösótt í byrjun en svo komu frumkvöðlar og fóru af stað fyrir vestan, í Bíldudal og á því svæði, og í dag sjáum við hafa byggst upp atvinnugrein sem skiptir gríðarlega miklu máli í verðmætasköpun fyrir þjóðarbúið en ekki síst og kannski enn frekar með alveg gríðarlegum byggðaáhrifum. Mér er það minnisstætt árið 2017 þegar ég var í samgönguráðuneytinu og fór um landið og heimsótti m.a. sunnanverða Vestfirði. Þar töluðu menn um pallasumarið mikla, akkúrat það ár, fyrir níu árum að verða. Það var þá sem fólkið áttaði sig á því að það var að fara að eiga heima áfram á Vestfjörðum. Það var komið ljós við enda svipuganga sem byggðirnar höfðu farið í gegnum og menn sáu vonarglætu. Það hefur heldur betur ræst. Þarna voru í fyrsta skipti að sjást malbikunarvélar á götum í 30 ár. Þarna var fólk farið að smíða og dytta að húsunum sínum, smíða palla og koma sér fyrir, af því að það áttaði sig á því að það var þess virði að fara að fjárfesta. Það var komin framtíðarsýn.

Síðan hefur þetta hægt og rólega byggst upp á þessum árum og í fyrra voru flutt út í kringum 50.000 tonn af slátruðum laxi og sköpuðu útflutningsverðmæti upp á sirka 50 milljarða. Þannig að laxeldi í sjókvíum og annað eldi sem er svona í litlum sprotum með því er farið að skila okkur á við kannski eina og hálfa góða loðnuvertíð, ef maður vill nota einhvern samanburð í þessu.

Það er því ljóst, virðulegur forseti, að það er gríðarlega mikið undir þegar við fjöllum um þessa atvinnugrein og þau byggðalegu áhrif sem þessu fylgja og þjóðhagslegu áhrifin, þ.e. þjóðartekjur okkar og útflutningsverðmæti sem skapast við þetta. Byggðastofnun reiknaði það einhvern tímann út fyrir mig að þetta væru um 23 bein og afleidd störf á hver 1.000 tonn og þá getur hver og einn reiknað hvað þetta er í raun orðið fjölmenn grein. Það er mjög mikið af afleiddum störfum í kringum þetta. Það var einmitt á þessu ári sem sjómannasamtökin komu til tals við okkur og óskuðu eftir því að undanþága yrði gefin fyrir skipstjórnarmenn á þeim bátum sem þjónusta fiskeldið fyrir vestan á þeim tíma vegna þess að þeir höfðu bara ekki mannskap til þess að geta sinnt þessu öðruvísi en að inn kæmu strandveiðisjómenn eða þeir svona pungaprófssjómenn sem fengju undanþágu til að vinna innan fjarða á þeim bátum sem þarf í kringum þetta. Svo er hægt að segja sögur af rafvirkjanum sem var einn að sniglast á sunnanverðum Vestfjörðum og var allt í einu kominn með marga menn í vinnu og það er hægt að segja sögur af eina flutningabílnum sem var að skælast á milli Bíldudals og Reykjavíkur og allt í einu var kominn fjöldinn allur af stórum flutningabílum o.s.frv.

En við glímum við hina hlið peningsins sem er þá að tryggja umgjörðina, öryggismálin og samkeppnishæfni greinarinnar. Það hefur valdið heilmiklum deilum í okkar samfélagi og við þurfum auðvitað að reyna að nálgast það af eins miklu raunsæi og skynsemi og kostur er. Þegar við settum lögin sem núna gilda man ég vel eftir því, af því að ég sat í nefndinni þegar þau voru sett, að við töldum okkur vera að setja hörðustu löggjöf sem um þetta fjallaði í þeim löndum sem við berum okkur saman við, Noreg, Færeyjar, Skotland á þessum tíma. Við vorum að ganga lengra heldur en allir aðrir. En það er löngu tímabært að taka þau lög upp og ég fagna því að það skuli vera komið hér fram frumvarp frá hæstv. ráðherra. Ég legg áherslu á það að nefndin verði að vanda vel sína vinnu og gefa þessu góðan tíma af því að það geta legið í svona viðamiklu lagafrumvarpi gildrur sem við sjáum kannski ekki alveg fyrir í dag, gildrur og jafnvel hættur sem ekkert okkar vill standa að.

Við verðum auðvitað samhliða þessu að kynna okkur vel þær breytingar sem eru að verða á öllu umhverfi þegar kemur að sjókvíaeldi því að gagnrýnin snýst nú mest um það og áhættan kannski meiri heldur en í landeldi, þótt hún sé vissulega fyrir hendi þar. Við þurfum að kynna okkur vel þessa þróun og horfa á löggjöfina með þeim augum að við séum að átta okkur á því einmitt í hvað við stefnum á næstu árum. Tækni í þessum geira eins og öðrum fleygir fram. Mér er minnisstætt þegar ég var á einhverri sýningu í Laugardalshöll þar sem Hampiðjan var með bás og var að sýna okkur nýjustu útgáfurnar af þessum sjókvíum. Þau komu með tvöföld net í allt saman, alltaf verið að hugsa um að styrkja þannig að slysin sem geta orðið hafi ekki þau áhrif sem við höfum upplifað. Einnig var klæðning á kvíum niður fyrir ákveðið dýpi þannig að lúsin fái ekki þrifist og komist ekki í kvíarnar o.s.frv. Það fara náttúrulega saman hagsmunir greinarinnar og hagsmunir veiðiréttareigenda í þessu samhengi vegna þess að það er mikill kostnaður fyrir fiskeldisfyrirtækin að missa fisk, hvort sem það er úr sjúkdómum, út frá einhverju lúsafári eða bara í slysasleppingum. Að þessu markmiði þurfum við að vinna saman og við þurfum að horfa til þessarar framtíðar sem við okkur blasir.

Hér var rætt aðeins áðan um ófrjóan lax og ég hef heimsótt framleiðendurna í Vogum sem eru að vinna að þessari þróun. Þarna eru íslenskir vísindamenn í fararbroddi í heiminum þegar kemur að þessu og það er, eins og hæstv. ráðherra orðaði það, innan seilingar og búið að vera innan seilingar en er á góðri ferð. Það mun gjörbreyta öllum aðstæðum þegar kemur að áhættumati sem tekur tillit til m.a. áhrifa af mögulegri erfðablöndun. Þá skiptir þetta bara grundvallarmáli og það mun kannski opnast fyrir fjölmörg önnur svæði á landinu fyrir sjókvíaeldi þegar þessi stund rennur upp. Það hafa líka verið lagðar fram, eins og í Eyjafirði, hugmyndir um blandað landeldi og sjókvíaeldi þar sem fiskurinn er alinn upp í kerum í fjöruborðinu þar sem gætir sjávarfalla og sjóstraumur er um fiskinn en hann er fluttur miklu stærri út í kvíar og er þá þar í miklu skemmri tíma. Þetta gerir fiskinn sterkari til að takast á við þær aðstæður sem eru þegar hann er kominn út í fjörð og þá er hann ekki eins næmur fyrir lúsafaraldri og þegar hann fer yngri og minni í kvíarnar.

Það eru svo sem aðrar vár sem líka blasa við veiðiréttareigendum og þeim sem eru með laxveiðiárnar okkar mikilvægu og verðmætu. Það er til að mynda ásókn annarra fisktegunda, laxa þá sérstaklega, eins og hnúðlaxinn sem er farinn að sækja í umtalsverðum mæli upp í íslenskar ár og er áhyggjuefni. Ég átta mig ekki á því og hef ekki fengið upplýsingar um það hversu mikil áhrif hrygning hans í íslenskum ferskvatnsám getur haft á t.d. seiðabúskap í ánum. Eru seiði frá þessum laxastofni sterkari en seiðin frá okkar náttúrulegu laxastofnum? Þá getur þetta haft áhrif á seiðabúskapinn og hversu mikið áin fóðrar. Það eru margar hætturnar sem blasa við og það kemur þá að því að við þurfum að hugsa til þess að verja laxveiðiárnar miklu betur en við erum að gera. Ég tel að það ætti að vera samstarfsverkefni þeirra sem eru í eldinu og veiðiréttarhafanna, veiðiréttareigendanna, að koma upp gildrum. Ég veit að það er víða áhugi á slíku og ég hef séð áætlun, t.d. í einni þekktri laxveiðiá á Vesturlandi þar sem er áætlað að þetta kosti um 70 milljónir en þá tekur þessi tækni frá allan óeðlilegan lax sem gengur í ána eða óeðlilegan fisk, hvort sem það er hnúðlax eða lax úr eldi o.s.frv. Tæknin er farin að ráða við þetta líka og þarna þurfum við að standa við bakið á veiðiréttareigendum, að mínu mati, með því að koma þessum vörnum fyrir og hjálpa þeim að byggja þær upp. Það er hægt að fara í stórt átak í því verkefni á skömmum tíma. Þó að það sé greitt síðan úr einhverjum sjóðum sem verða til vegna gjaldtöku af greinum er hægt að greiða það upp á lengri tíma, en að fara í svona stærra útboð.

Það er margt sem er hægt að tala um í þessu frumvarpi og nú er tími minn að verða liðinn, virðulegur forseti, og ekki fer ég á mælendaskrá aftur í dag. Það sýnir kannski allt um það að maður nær ekki að koma því á framfæri sem maður vill á þessum skamma tíma vegna þess að það er verið að stilla hér þingmönnum upp með ósmekklegum hætti til þess að ræða þetta mikilvæga mál.

Við erum, eins og ég sagði áðan, á miklum tímamótum. Við erum með atvinnugrein sem getur haft meiri efnahagsleg áhrif en nokkuð annað sem við höfum augun á í augnablikinu fyrir íslenskt samfélag. Við getum verið að tvöfalda útflutningsverðmæti í laxeldi á tiltölulega skömmum tíma. Miðað við það sem er í pípunum í dag þá getum við verið, ef við greiðum leið, að sjá atvinnugrein sem skapar hundruð starfa til viðbótar, ef ekki meira, með afleiddum störfum, örugglega vel á annað þúsund störf til viðbótar við það sem nú er og getur tvöfaldað útflutningsverðmæti. Við getum verið komin hér með útflutningsverðmæti innan skamms tíma upp á annað hundrað milljarða króna. Það er ný stoð í íslensku samfélagi.

Við verðum að gæta að samkeppnishæfni. Það er heilmikið farið yfir gjaldtökuna í þessu frumvarpi og það er margt sem er hægt að tala um það. Það verður verkefni nefndarinnar að vega og meta þessar tillögur sem koma fram í frumvarpinu. Við verðum að gæta þar að samkeppnishæfni greinarinnar og það má ekki halda aftur af fjárfestingu og vexti í henni. Við þurfum að hafa vel í huga hversu mikilvægt þetta er fyrir byggðirnar og þann fyrirsjáanleika sem þær hafa í sinni uppbyggingu og við þurfum að horfa til þess að reyna að gera þetta í eins mikilli sátt á milli aðila og hægt er. Ég geri mér grein fyrir því að það verða alltaf um þetta mál skiptar skoðanir en við þurfum að reyna að forða því að þetta fari í einhverjar skotgrafir. Það er í grunninn allt of mikilvægt mál, þjóðhagslega og byggðarlega, í húfi til þess að við getum leyft okkur það.