157. löggjafarþing — 87. fundur,  23. mars 2026.

lagareldi.

529. mál
[17:23]
Horfa

Jón Gunnarsson (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Þetta er nýlunda, þetta gjald sem hv. þingmaður nefnir hér, affallagjald. Það er það sem ég kom inn á í stuttri ræðu minni um þetta mál áðan, af því að efnislega hafði maður ekki tíma til að fara í frumvarpið í einhverjum liðum. Maður tekur því alltaf varlega þegar verið er að feta nýjar leiðir í gjaldtöku og það er bara grundvallaratriði að nefndin hafi það sem leiðarljós í gegnum sína vinnu við skattlagningu á þessari grein, sem og öðrum atvinnugreinum, að greinin verði samkeppnishæf. Hún er í bullandi samkeppni á erlendum mörkuðum við framleiðslu í öðrum löndum, nágrannalöndum okkar. Það vakti reyndar athygli mína líka varðandi framleiðslugjaldið, sem tekur við af gjaldi vegna fiskeldis í sjó, að menn virðast á þeim bæ hafa áttað sig á því að það er ekki góð latína að miða íslenska gjaldstofna við markaðsverð í Noregi, eins og var gert með makrílinn og er reyndar við lýði í lögunum núna. Menn virðast eitthvað vera að ná áttum í því að það er ekki góður samanburður. Kannski að þeir taki upp fiskveiðilöggjöfina aftur og taki veiðigjaldið og útreikninga á því af norskum markaði. Þetta er alla vega vísbending sem mér líkar ágætlega að sjá. En við þurfum bara að fara „grundigt“ yfir þetta með hagsmunaaðilum og sérfræðingum og gera okkur grein fyrir því hvaða álögur við erum að leggja á þessa grein. Hún er að vaxa og það má ekki draga úr fjárfestingargetu og fjárfestingarvilja, að vera hér með of mikla gjaldtöku. Við höfum verið á rangri leið í þeim lögum sem við settum á sínum tíma og við þurfum að bæta úr því í þessari viðamiklu löggjöf.