157. löggjafarþing — 87. fundur,  23. mars 2026.

lagareldi.

529. mál
[17:27]
Horfa

Jón Gunnarsson (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni það traust sem hann sýnir mér að vera með svona efnislega djúpar spurningar um þetta mál. Ég veit að þekking mín er alveg ágæt á þessum málaflokki en þetta er kannski spurning sem hefði átt að beina að hæstv. ráðherra. Þarna erum við aftur með ákvæði sem nefndin hlýtur að þurfa að leggjast mjög í greiningu á hvaða áhrif hefur og mögulegar afleiðingar, hvernig það getur verið framkvæmt og hversu raunhæft það er. Þetta verður okkar vinna. Aftur komum við þá bara að því að í þessu regluverki sem er boðað í frumvarpinu eru margar nýjungar. sumt af því er eitthvað sem við höfum greinilega verið að horfa til nágrannalanda okkar með, samkeppnissvæða, en í öðrum tilfellum eitthvað sem er alveg nýtt og getur verið ágætt en þarfnast bara mjög ítarlegrar yfirlegu og mats nefndarinnar á því hvernig til tekst.