157. löggjafarþing — 87. fundur,  23. mars 2026.

lagareldi.

529. mál
[17:28]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka fyrir svarið og taka undir með hv. þingmanni að það hefði verið eðlilegra að ég beindi þessari fyrirspurn til ráðherra. Þar komust bara færri að en vildu. Hins vegar er rétt að geta þess, af því að þetta var aðeins á reiki í upphafi, bæði mínútufjöldi og annað, að hæstv. ráðherra lagði til, af því að hér væri í raun og veru um tvö mál að ræða sem yrði samtímis fjallað um, að það yrðu átta sem fengju að spyrja. En svo var ekki og því neyddist ég til þess, frú forseti, að reyna að finna einhvern í salnum sem gæti hjálpað mér að skilja þetta því að ekki fékk ég að tala við hæstv. ráðherra.