lagareldi.
Forseti. Mig langar til að þakka hv. þm. Þórarni Inga Péturssyni fyrir fína ræðu og tek bara undir með honum að þetta er mikilvægt mál sem ég vona að við náum að klára á þessum þingvetri. Aðeins um það sem hv. þingmaður kom inn á varðandi gjaldtökuna, að almennt eigi ekki að vera of flókið regluverk. Ég er hjartanlega sammála því en hins vegar vill oft vera flókið mál að einfalda regluverk sem fyrir er, flóknara verkefni en að byggja nýjan ramma. Við erum engu að síður að setja eftirlitið t.d. saman hjá Matvælastofnun og Umhverfis- og orkustofnun og við erum líka að skeyta saman tveimur gjöldum, þ.e. framleiðslugjaldi og umhverfisgjaldi, í eitt gjald og lækka það til muna, nokkuð sem er eðlilegt fyrir atvinnugrein sem er á því stigi sem hún er, í einhverju stærra samhengi á upphafsskrefum. Síðan er það auðvitað affallagjaldið en þar er einfaldlega verið að búa til hvata, fjárhagslega hvata, til þess að draga úr þessum afföllum sem í dag eru of mikil. Það eru stigin varfærin skref og fyrirtæki hafa tíma til að laga sig að þessu. Þetta snýst ekki um peninga í ríkiskassann. Þetta snýst um að búa til þessa hvata því framtíðarsýnin er sú að það verði ekkert affallagjald greitt vegna þess að hin hliðin á þeim peningi er að fyrirtækin nái tökum á þessu og efli þar með sjálfbærni þessarar mikilvægu atvinnugreinar okkar.
Hv. þingmaður fór yfir það að landeldið er vaxandi atvinnugrein. Við vitum að það er verið að byggja þar upp landfræðilega á öðrum stöðum en sjókvíaeldið. Við vitum líka að það eru ákveðnar áskoranir þar sem við er að etja og við bætist síðan mjög mikill fjárfestingarkostnaður. En mig langaði að spyrja hv. þingmann hvort hann sæi fyrir sér að þessar tvær tegundir, þ.e. landeldi og sjókvíaeldi, ættu framtíðina fyrir sér í einhvers konar samspili og við þekkjum það, hvort sem það er seiðauppeldi, (Forseti hringir.) ala fiskseiði lengur í landi, setja þau síðar út í sjó o.s.frv. (Forseti hringir.) Frekar en að velja eitt umfram annað sé það hvort tveggja sem styrkir bara lagareldi á Íslandi sem atvinnugrein.