157. löggjafarþing — 87. fundur,  23. mars 2026.

lagareldi.

529. mál
[17:47]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir góða spurningu og þetta var svo sem eitt af því sem ég átti eftir að koma inn á í minni ræðu, það sem snýr að þessu samspili landeldis og sjókvíaeldis. Nú hafa sum fyrirtæki, sérstaklega fyrir austan, þ.e. Kaldvík, verið að þróa og byggja upp ákveðið frumeldi, ef við getum kallað það svo, eins og við Kópasker. Þar er verið að ala fiskinn upp í ákveðna stærð áður en honum er sleppt út í sjó. Það vill þannig til að þessi ákveðna stöð er á þessu ákveðna gosbelti sem allt landeldi virðist nú helst þurfa að vera á. En það er klárlega þannig að það er ákveðið samspil á milli þessara hluta. Sömuleiðis verður það nú þannig, og er að einhverjum hluta, að fjársterk fyrirtæki beggja vegna hafa fjárfest bæði í landeldi og í sjókvíaeldi. Sömuleiðis eru þessi fyrirtæki þá gríðarstór í sjávarútvegi og geta þá að sjálfsögðu nýtt sín sölukerfi og markaði vegna þess að eftirspurnin eftir hvítum fiski er alltaf gríðarleg en bleiki fiskurinn er vaxandi á kostnað hvíta fisksins vegna þess að hvíti fiskurinn er að gefa eftir, það er ekki nægilegt magn til af honum í heiminum, en bleiki fiskurinn er á fullri ferð. Sömuleiðis hefði ég viljað sjá enn meiri kraft settan í uppeldi á bleikju því að það er, held ég, gríðarlega spennandi og magnaður markaður og við sjáum að hjá þessum stöðvum sem hafa verið að rækta bleikju hefur eftirspurnin verið mikil. En vissulega er það þannig, frú forseti, að samspil þessara þátta er mikið og væntanlega verður það vaxandi í framtíðinni.