157. löggjafarþing — 87. fundur,  23. mars 2026.

lagareldi.

529. mál
[17:50]
Horfa

atvinnuvegaráðherra (Hanna Katrín Friðriksson) (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka andsvarið hjá hv. þingmanni og það er nákvæmlega svona sem við eigum, að mínu mati, að horfa á hlutina. Mig langar þá í seinni umferð að koma með spurningu sem lýtur að því að við vinnslu þessa frumvarps hafa einstaka sinnum heyrst þær raddir að af því að landeldið sé svo ólíkt sjókvíaeldi þá eigi þetta að vera í sitthvoru frumvarpinu, það eigi að gilda annað. Ég hafna því, við höfum gert það í ráðuneytinu, vegna þess að það er mikilvægt að ná einum ramma utan um þessa atvinnugrein. Hv. þingmaður í ræðu sinni áðan kom vel inn á þær áskoranir sem landeldið stendur frammi fyrir: það er orkan, það er vatnið, það er sjórinn og það er landfræðileg lega að öðru leyti. Þessi atvinnugrein er umtalsvert skemur á veg komin en sjókvíaeldið og að mínu mati er a.m.k. hluti af ástæðunni fyrir því sá að einhverjar umhverfislegar áskoranir eru bara hreinlega ekki komnar í ljós. Það er því mjög mikilvægt að hafa ákveðinn ramma. Síðan eru auðvitað undantekningar og það eru ekki nákvæmlega sömu hlutir sem við er að etja. En af því að hv. þingmaður kemur inn á sjávarútvegsfyrirtækin okkar þá er það alveg staðreynd að við njótum góðs af þeim við uppbyggingu þessarar atvinnugreinar. En sjávarútvegurinn á líka heilmikið undir því að vel takist til við uppbyggingu þessarar atvinnugreinar, þetta samspil er gríðarlega mikilvægt.

Mig langaði eiginlega bara fyrir forvitnissakir að athuga, af því að hv. þingmaður kemur einmitt inn á landeldið og þetta samspil, hvort hann sé ekki sammála mér í því að það sé mikilvægt að hafa þennan skýra ramma utan um allar þessar tegundir eldis. Síðan geta menn leikið sér með það, eins og við reyndar gerum í frumvarpinu, að ganga mismunandi langt eða skammt í tilteknum atriðum. En er ekki málið að ná utan um þetta á heildstæðan hátt, a.m.k. á meðan við erum að byggja þetta upp, hvað sem síðar verður?