157. löggjafarþing — 87. fundur,  23. mars 2026.

lagareldi.

529. mál
[17:52]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir spurninguna og frumvarpið sjálft rammar þetta nú frekar vel inn í einu orði sem er lagareldi. Ég held að þetta sé svona svipað eins og við værum að fjalla um búvörulög og ætluðum að greina þau niður á búgreinar. Það er bara eðlilegur hlutur, finnst mér, þegar við erum að fjalla um eldi, hvort sem það er á laxi, bleikju, lúðu eða hvað sem er — það er nú fjallað hérna um hafeldi lítillega og sömuleiðis fjarðabeit — að þetta sé í sjálfu sér undir sama hatti. Ég er sammála ráðherranum hvað það varðar. Það er sömuleiðis mikilvægt vegna eftirlits og vegna t.d. dýralækna og þeirra sérfræðinga í sjúkdómum sem herja á eldisfiska. Það er óhjákvæmilegt í svona stóru og miklu eldi að það geta komið upp sjúkdómar, hvort sem það er í landeldi eða í sjó. Og það er einn þátturinn sem við eigum alveg eftir að ræða í þessari umræðu, þ.e. að mennta og styðja einstaklinga til menntunar og fræða til þess að verða betri sérfræðingar til að þjónusta þessa mikilvægu atvinnugrein. Við þurfum sérfræðiaðstoð í öllum atvinnugreinum og sérstaklega þegar kemur að matvælavinnslu, hvort sem það er í fiskeldi eða í landbúnaði, þá höfum við bara því miður setið eftir og lokað báðum augum og ekki sinnt því hlutverki sem snýr að því (Forseti hringir.) að þróa sérfræðinga til þess að verða skapandi fyrir atvinnugreinarnar.