157. löggjafarþing — 87. fundur,  23. mars 2026.

lagareldi.

529. mál
[17:59]
Horfa

Arna Lára Jónsdóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka þingmanninum fyrir gott andsvar. Ég deili auðvitað þessum áhyggjum, það er vont þegar svona mál lenda í deilum. Strandsvæðisskipulagið er þess eðlis að það á sér stað mjög mikið samtal áður en til þess kemur að það sé kynnt. Það fer fyrir allar sveitarstjórnir á viðkomandi svæði. Okkur Vestfirðingum lánaðist alla vega að vera alveg sammála um hvar við vildum hafa þessa starfsemi en það krafðist náttúrlega mikillar yfirlegu og mikils samtals. Við vorum búin að ræða þetta í fjöldamörg ár áður en til þessa kom, þannig að ég held að með góðu samtali sé hægt að ná betri árangri.

Mig langar í síðara andsvari að ræða aðeins nýbreytni í lögunum sem er samfélagsframlag, þannig að nú þurfa sveitarfélög sem eru með starfsemi í sjókvíaeldi á sínu svæði — nú er verið að leggja Fiskeldissjóð af og þessi sveitarfélög þurftu að sækja um í þann samkeppnissjóð til að fá framlag til að standa undir innviðauppbyggingu þegar kom að starfsemi sveitarfélags til að taka við þessari miklu starfsemi. Það sem gerist auðvitað er, eins og við höfum séð, bæði á Vestfjörðum og Austfjörðum, að það verður gríðarleg innspýting inn í samfélögin. Þetta fjármagn hefur verið til þess að hjálpa sveitarfélögunum að búa sig undir það. Það er verið að byggja slökkvistöðvar o.s.frv. Mig langar að spyrja leiðandi spurningar: Er hv. þingmaður ekki sammála þessari breytingu sem hér er gerð? Nú er ekki verið að afleggja þennan samkeppnissjóð heldur en nú er þetta bara framlag sem gengur til þessara sjókvíaeldisbyggða. Er hann ekki sammála þessari, ég myndi segja viðamiklu breytingu?