157. löggjafarþing — 87. fundur,  23. mars 2026.

lagareldi.

529. mál
[18:01]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir mjög leiðandi og góða spurningu. Kosturinn við að fá svona efnisgóða og leiðandi spurningu er sá að það leiðir til þess að svarið er mjög stutt: það er já. Hv. þingmaður sem hér stendur er sammála þeirri nálgun sem er í þessu frumvarpi sem snýr að þessu. Ég met það þannig á samtölum mínum við fulltrúa í sveitarfélögum vítt og breitt um landið að það sé almenn ánægja með að stíga þetta skref og ég held að það sé mjög mikilvægt. Það fyrirkomulag sem hefur verið viðhaft hér og er við lýði í dag er þannig að sveitarfélögin geta aldrei séð fyrir hvað þau eru að fá. Það er annars mjög mikilvægt, sérstaklega upp á hafnarmannvirki að gera — og við þekkjum öll þær deilur sem hafa verið varðandi hafnargjöld, aflagjald, ef ég man þetta rétt — vegna þess að sveitarfélögin þurfa að útvega ákveðna innviði, ákveðna þjónustu við þessi fyrirtæki. Þar af leiðandi er mjög mikilvægt að þessu sé breytt og sú breyting sem er í því frumvarpi sem hér er rætt er til mikilla bóta og fagna ég henni sérstaklega.