157. löggjafarþing — 87. fundur,  23. mars 2026.

lagareldi.

529. mál
[18:02]
Horfa

Arna Lára Jónsdóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Hér erum við að ræða nýtt lagafrumvarp um gríðarlega stóra atvinnugrein á Íslandi sem hefur farið mjög vaxandi, sem er lagareldi. Ég ætla að byrja á því að fá að óska hæstv. atvinnuvegaráðherra til hamingju með að málið sé komið á dagskrá og mælt fyrir því í dag af því að þetta er alveg gríðarlega mikið framfaramál fyrir atvinnugreinina, fyrir samfélög og fyrir umhverfið. Núgildandi lög eru frá 2009, ef ég man rétt. Það voru gerðar töluverðar breytingar 2014 og aftur 2019, en vöxturinn í greininni hefur verið gríðarlegur og löngu orðið tímabært að setja ný heildarlög fyrir lagareldi.

Þessi grein er orðin burðarás í útflutningstekjum okkar og það hefur komið hér fram í nokkrum ræðum í dag að hún er farin að skila yfir 50 milljörðum í útflutningstekjur. Ég kem nú frá Vestfjörðum og það eru gríðarlega margir sem eru farnir að starfa við atvinnugreinina. Það eru yfir 900 manns nú þegar sem starfa við hana og það hefur orðið gjörbreyting á þessum samfélögum þar sem starfsemin fer fram. Ég bara hvet þá sem hafa ekki farið á Vestfirði og Austfirði að kíkja á þessar byggðir og sjá breytinguna af því að hún er alveg gríðarleg. Það spretta upp þessi fyrirtæki og það sem er kannski ekki síður mikilvægt er að það er svo gríðarlega mikið af afleiddum störfum sem þessu fylgja og fjölbreyttum þannig að hér erum við að tala um algjöra umbreytingu á þessum samfélögum.

Ástæðan fyrir því að ég fagna þessu frumvarpi er auðvitað að þetta er þannig frumvarp og þannig atvinnugrein að það hafa allir skoðanir á henni og hún er mjög umdeild og það er flókið að setja löggjöf um svona atvinnugrein. Það þarf að horfa til margra þátta. Það þarf að horfa til atvinnugreinarinnar sjálfrar og að hún hafi sterka umgjörð. Hún er auðvitað mjög háð umhverfinu þannig að það þurfa líka að vera sterkir umhverfisþættir þar og mér sýnist ráðherra og hennar fólki hafa tekist býsna vel til. Þetta mál er í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar og ég veit að margir hafa velt fyrir sér hvernig Samfylkingin muni taka þessu máli og það skiptir auðvitað okkur í Samfylkingunni mjög miklu máli að það sé vandað til verka. Það hefur mjög mikið verið rætt innan okkar hóps og í okkar flokki hvernig við ætlum að stíga til jarðar í þessum málaflokki þannig að við gerum bæði vel í því að sjá tækifærin í greininni, búa vel um greinina sjálfa og svo að passa upp á umhverfið. Okkar ályktun hvað varðar fiskeldið hefur verið mjög skýr. Hún er sú að framtíðarþróun og verðmætasköpun í fiskeldi verður að byggja á skýrum kröfum um sjálfbæra nýtingu og aukinni áherslu á traust eftirlit, vöktun og rannsóknir. Þannig náum við árangri og þannig náum við fram verðmætasköpuninni. Þetta hefur alveg verið skýrt frá okkar hálfu og við styðjum auðvitað þessa atvinnugrein. Það þarf enginn að efast um það að Samfylkingin styður uppbyggingu fiskeldis og við höfum mótað okkur mjög skýra stefnu í þessu máli sem tekur á þessum þáttum sem ég nefndi.

Mig langar líka að nefna að það eru svo margir sem halda að fiskeldi sé einhvers staðar og úti um allt, og á er ég kannski fyrst og fremst að tala um sjókvíaeldi, en það er búið að loka stórum hluta af Íslandi fyrir sjókvíaeldi. Sjókvíaeldi er eingöngu leyfilegt á Vestfjörðum og Austfjörðum. Það á eftir að taka ákvörðun um Eyjafjörðinn og Öxarfjörðinn væntanlega, en öðru er bara búið að loka. Það er búið að loka Breiðafirðinum, það er búið að loka Faxaflóanum og svo er auðvitað ekki hægt að stunda þetta meðfram suðurströndinni. Þannig að þetta á við um mjög afmörkuð svæði. Svo ég taki nú mitt heimasvæði þá eru þar sirka 48 firðir, myndi ég halda, 46 eða 48, ég man ekki hvort það er, og það er stundað fiskeldi í níu þeirra. Það er ekki meira en það. Það er stundað fiskeldi í níu fjörðum. Þetta eru vissulega stórir firðir en þetta er ekki úti um alla Vestfirði.

Mín skoðun er sú að það sem hefur kannski verið hluti af okkar farsæld í þessu máli er að það fór mikið samtal fram um hvar við vildum hafa fiskeldi og hvar ekki og sveitarfélög á Vestfjörðum lögðu gríðarlega mikla áherslu á Jökulfirði, að fiskeldi yrði ekki leyft þar, og á það var hlustað þannig að í strandsvæðisskipulagi Vestfjarða má ekki stunda sjókvíaeldi í Jökulfjörðum. Og ég held að það sé mikilvægt að það var hlustað á skoðanir heimamanna og skoðanir sveitarfélaganna. En fiskeldi er sem sagt í níu fjörðum.

Það sem mig langar líka að nefna og vil kannski biðja nefndina að skoða sérstaklega — ég sé að það er mikil áhersla lögð á eftirlit, rannsóknir og svo náttúrulega menntun í greininni sem mér finnst alveg gríðarlega mikilvægt — það væri gott ef nefndin tæki sérstaklega svona svæðisbundna nálgun hvað það varðar, af því að ég held að það sé gríðarlega mikilvægt að eftirlit með greininni sé stundað á áhrifasvæði greinarinnar og menntunin. Það væri nú hægt að setja það í áramótaskaupið að þegar það varð slysaslepping á Vestfjörðum voru eftirlitsmennirnir ræstir út frá Selfossi. Það gengur auðvitað ekki upp. Það þarf að vera eftirlit á svæðunum og það þurfa að vera rannsóknir á svæðunum og þannig byggjum við upp meiri þekkingu og meiri skilning á greininni. Ég hvet hv. atvinnuveganefnd til að skoða sérstaklega svæðisbundin áhrif af þessum þætti málsins, þ.e. eftirliti, menntun og rannsóknum

Það er eitt sem mig langar líka að gera að umtalsefni og það er að verið er að leggja niður umhverfissjóð. Ég sé að í nokkrum umsögnum sveitarfélaga er því velt upp að sjálfstæðar rannsóknarstofnanir, t.d. náttúrustofur og svona, hafi ekki lengur tækifæri til að sækja um í umhverfissjóð sjókvíaeldis. Ég myndi alla vega óska þess að það yrði skoðað fyrir nefndinni hvaða leiðir eru fyrir sjálfstæðar rannsóknarstofnanir að stunda rannsóknir í greininni af því að ég held að það sé mikilvægt að það séu fleiri aðilar heldur en Hafró og síðan Matvælastofnun eftir atvikum, en væntanlega bara Hafró, sem stundi rannsóknir. Ég held að það myndi styrkja málið ef það væru einhver svör við því hérna við 2. umræðu.

Svo langar mig að taka hérna upp það sem ég ræddi aðeins í andsvari við hv. þm. Þórarin Inga Pétursson, það var samfélagsframlag. Mér finnst skipta alveg gríðarlega miklu máli að það verði hlustað á sveitarfélögin sem hafa í mörg ár gert athugasemdir við það að hafa þurft að sækja um í Fiskeldissjóð, sem var samkeppnissjóður þannig að sveitarfélögin sátu sveitt við það á vorin hvert ár að sækja um í sjóðinn til að sinna ákveðnum innviðaverkefnum í hverju sveitarfélagi. Það var einhvern veginn verið að etja sveitarfélögum á móti hvert öðru. Svo var það kannski svolítið þannig að þau sveitarfélög sem voru hvað duglegust að sækja um og höfðu kannski einhverja reynslu af umsóknarskrifum voru í betri stöðu, og það var kannski eðlilegt, til þess að fá út úr þessum sjóði.

Ég held að það sé alveg lykilatriði, ef þessi grein, lagareldi, á að fá að eflast og þróast, þá verður það að gerast í sátt við nærsamfélagið og þess vegna skiptir svo miklu máli að nærsamfélagið sjái afrakstur greinarinnar. Maður sá það bara í úthlutunum Fiskeldissjóðs. Auðvitað veit ég að það var reynt að skipta svona þokkalega á milli sjávareldisbyggða af því að þetta voru gríðarlega mikilvæg verkefni sem var verið að fara í. Þetta voru leikskólar, slökkviliðsstöð, slökkviliðsbílar, svona grunnverkefni sem eru á hendi sveitarfélaga. Þess vegna fagna ég því að þetta sé komið hérna fram sem samfélagsframlag og líka því að það hefur verið hlustað á sveitarfélögin. Ég held að það sé gríðarlega mikilvægt.

Mig langar líka að nefna sérstaklega, því ég nefndi áðan rannsóknir, menntun og þróun, að í frumvarpinu er talað um ákveðin rannsóknarleyfi en í nokkrum umsögnum sveitarfélaga um málið sem birtust í samráðsgátt er velt upp hugmyndinni um skólaleyfi. Skólaleyfin eru þá þannig að skólar í samstarfi við fiskeldisfyrirtæki geta sótt um þessi skólaleyfi. Hugmyndin með þeim er að búa til þekkingu og að mennta og þjálfa starfsfólk upp í greininni. Ég held að það sé gríðarlega mikilvægt og ég held að það gæti líka verið einn þáttur fyrir nefndina að skoða. Ég beini því til nefndarinnar að skoða sérstaklega hvort það væri hugmynd að skrifa það sérstaklega inn í lögin að heimilt sé að vera með þessi skólaleyfi. Í Önundarfirði til að mynda eru 4.000 tonn sem eru enn þá óúthlutuð. Það mætti sjá fyrir sér að þau tonn yrðu nýtt fyrir þessi skólaleyfi. Þá er þetta bara þannig að það eru skólinn og fyrirtæki sem reka kví saman og markmiðið er að kenna nemendum og starfsfólki og það væri líka hægt að hugsa sér að nota skólaleyfi til þess að vera með þróun á búnaði, lokuðum kvíum, hálflokuðum kvíum. Ég sé tækifæri til að slíkt skólaleyfi væri nýtt til þess. Það hafa auðvitað orðið alveg gríðarlega miklar breytingar á greininni. Hún hefur náttúrlega vaxið ótrúlega hratt og hún óx miklu, miklu hraðar heldur en löggjöfin. Það varð svolítið til þess að við lentum í þeim vanda sem við vorum í, þetta var bara eins og villta vestrið hérna þegar fyrirtæki voru að marka sér svæði áður en starfsemin hófst. Löggjöfin var ekki tilbúin og við vorum mjög lengi að reyna að greiða úr því og við erum í rauninni ekki enn búin að því og eins og þeir sem eru djúpt í atvinnugreininni — það er auðvitað best að það séu ekki mörg fyrirtæki að kássast ofan í hvert öðru. Það þarf að vera, og þessi löggjöf gengur auðvitað svolítið út á það, gott bil á milli fyrirtækja innan fjarðanna. Það er auðvitað langbest að það sé bara eitt fyrirtæki í hverjum firði til þess þau séu ekki að lenda í einhverjum smitum o.s.frv., og svo bara út frá umhverfissjónarmiðum. Staðan er sú að t.d. bara í Ísafjarðardjúpi eru alla vega þrjú fyrirtæki, held ég, búin að sækja um leyfi og það eru náttúrlega bara tvö starfandi og það er auðvitað langt á milli þeirra. Þetta er svona líka í fleiri fjörðum, á Dýrafirði, Tálknafirði og Patreksfirði. En hefðum við hugsað þetta frá grunni og ef við hefðum vitað það sem við vitum í dag fyrir hvað, 15 árum, þá hefðum við væntanlega, gef ég mér, sett bara eitt fyrirtæki í hvern fjörð. Þá værum við ekki með þessa smithættu o.s.frv. Það skiptir auðvitað gríðarlega miklu máli.

Ég fór aðeins í framleiðslugjaldið. Það er náttúrlega verið að gera miklar breytingar á því og maður þarf auðvitað svolítið að leggjast ofan í það hvernig það er reiknað. Þetta virðist vera jafn flókið og að reikna veiðigjaldið og ég geri ráð fyrir því að atvinnuveganefnd fari vel yfir það.

Að lokum vil ég bara enn og aftur segja að ég vona að okkur gangi vel að vinna þetta frumvarp. Við þurfum að vanda til verka. Þetta er gríðarlega stór og mikilvæg atvinnugrein sem hefur gjörbreytt byggðum á Vestfjörðum og Austfjörðum en við verðum að vanda til verka.