lagareldi.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Örnu Láru Jónsdóttur fyrir hennar ræðu hér og hæstv. ráðherra fyrir sína ræðu og sitt innlegg um þessi tvö frumvörp. Ég held að það sé öllum ljóst að þetta laxeldi hefur breytt ýmsu á Vestfjörðum. Það hefur verið mikil uppbygging í kringum það og líf færst í bæi og sveitarfélög sem ekki var og menn voru kannski á flótta þaðan áður. En í þessu frumvarpi vegast á umhverfissjónarmið og hagsmunir veiðiréttarhafa og svo hagsmunir lagareldis. Það sem mig langar að spyrja hv. þingmann um og fá fram hvað honum sýnist — það eru fengsælar laxveiðiár í Ísafjarðardjúpi og á Vestfjörðum þannig að þar geta orðið slys, ég held að það sé öllum ljóst; það verða slysasleppingar úr kvíum og svo er laxalúsin auðvitað þekkt fyrir það að hún er ekki staðbundin í kvíunum heldur getur hún ferðast tugi og jafnvel 100–200 km með hafstraumum. Hefur hv. þingmaður ekki áhyggjur af þessu varðandi laxveiði á Vestfjörðum? Vegna þess að það sem kemur inn á Vestfirðina og almennt með laxveiðiár — það er rosaleg búbót í kringum það og fullt af störfum sem fylgja því líka. Óttast hv. þingmaður þetta ekki með einhverjum hætti?