157. löggjafarþing — 87. fundur,  23. mars 2026.

lagareldi.

529. mál
[18:18]
Horfa

Arna Lára Jónsdóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Jóni Pétri Zimsen fyrir góða spurningu. Já, það eru auðvitað tvær laxveiðiár í Ísafjarðardjúpi. Þær eru kannski ekki eins stórar og flottar og árnar í öðrum landshlutum en engu að síður bara fínar laxveiðiár. Ég held að forsenda þess að þessi atvinnugrein vaxi og dafni sé að við náum árangri í því að vernda laxveiðiárnar af því að ég held að ef við náum ekki tökum á þessum umhverfisþáttum sé sjálfhætt, þannig að við verðum að vanda okkur. Það er nú reyndar þannig að það er eitt fyrirtæki sem er starfrækt í Ísafjarðardjúpi sem heitir Háafell og það býr yfir þeirri sögu að það hefur aldrei misst lax úr sínum kvíum. Það segir manni að þetta er hægt og að það þarf að vanda sig. Þeir hafa gripið til margra aðgerða, bæði þegar kemur að netum og vöktun og ferlum, þannig að þetta er alveg hægt. En það breytir ekki því að það verður að gera þetta ef við ætlum að ná árangri.

Varðandi lúsina þá er hún bara eðlislæg laxfiskum, alveg eins og öðrum fiskum. En það er líka hægt að ná árangri hvað það varðar. Til að mynda hafa þessi fyrirtæki á Vestfjörðum sem ég þekki til verið að nota hrognkelsi, grásleppuna, eins og mörg okkar þekkja, til þess að hjálpa sér við lúsina og það er verið að nota leysibyssur, það er verið að nota köld böð og svo er verið að nota svokölluð pils líka sem Hampiðjan á Ísafirði er að gera fyrir greinina. Það eru fjölbreyttar aðgerðir sem geta hjálpað til við að ná tökum á lúsinni. En eins og ég segi, það skiptir gríðarlega miklu máli að við náum tökum á þessum umhverfisþáttum ef við ætlum að ná framþróun í þessari grein.