157. löggjafarþing — 87. fundur,  23. mars 2026.

lagareldi.

529. mál
[18:23]
Horfa

Arna Lára Jónsdóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég held að það sé mikið til unnið ef við vöndum til verka með þessu frumvarpi. Ég held að eitt það mikilvægasta sem við getum gert séu þessar vaktanir sem við erum með á laxveiðiám, að setja myndavélakerfi í árnar þannig að hægt sé að bregðast við ef eitthvað kemur upp á. Það vill, held ég, ekkert fyrirtæki lenda í því að missa lax af því að fyrirtækin eru þá náttúrlega bara að missa verðmæti. Þannig að það er líka til mikils að vinna fyrir þau að vel sé haldið utan um starfsemina og að þetta sé gert með þeim hætti sem á að gera þetta. Ég held að það sé alveg augljóst. En slys gerast og náttúrlega er verst þegar hið mannlega veldur þeim slysum. Það er hægt að fyrirbyggja slíkt. Það geta auðvitað komið upp atvik þar sem slys gerast og þá verðum við að vera með einhverja ferla sem grípa. Það getur verið myndavélavöktun o.s.frv. Varðandi lúsina þarf bara að hafa nógu langt á milli fyrirtækjanna þannig að við séum með þessi smitvarnasvæði. Það er því hægt að ná gríðarlega miklum árangri með öflugu utanumhaldi. Að mínu mati er það algerlega forsenda þess að greinin sjálf nái árangri.

Varðandi það af hverju ekki hafi verið hlustað á Hafró í grásleppunni en að það sé gert í þessu frumvarpi — ég taldi mér trú um það og er eiginlega sannfærð um að það hafi líka verið hlustað á Hafró í grásleppunni. Hafró hefur haft það hlutverk að reikna út burðarþolsmat og áhættumat og það hefur verið mjög mikil sátt um þá vinnu. Það er reyndar líka sérstök nefnd varðandi áhættumatið. Í henni eiga sveitarfélögin að sitja og það eru líka náttúruverndarsamtök og fleiri sem eiga aðild að þeirri nefnd þannig að þarna á sér stað ákveðið samtal. Hvort það sé eðlilegt veit ég ekki. En Hafró er bara mjög mikilvæg stofnun þegar kemur að lagareldinu.