lagareldi.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svörin. Mig langar aðeins að ræða við þingmanninn um 7. gr. frumvarpsins varðandi lagareldi og vöktun í ám, og ég sé að þingmaðurinn er að leita að greininni. Þar kemur nefnilega fram, með leyfi forseta:
„Hafrannsóknastofnun ber ábyrgð á að grípa til aðgerða samkvæmt vöktunaráætlun. Hafrannsóknastofnun skal hafa samráð við Matvælastofnun og Fiskistofu við að hrinda vöktunaráætlun í framkvæmd og getur jafnframt falið Matvælastofnun, Fiskistofu eða einkaaðilum að sinna tilteknum þáttum vöktunaráætlunar, svo sem að fjarlægja laxa sem kunna að vera af eldisuppruna.“
Hérna finnst þeirri sem hér stendur skorta á samráð við landeigendur og veiðiréttarhafa. Mig langar að spyrja þingmanninn hvort hún sé ekki sammála mér í því að varðandi svona vöktunaráætlanir, sem eru mikilvægar, sé mikilvægt að eiga einnig samráð við veiðiréttarhafa og landeigendur. Það segir í frumvarpinu að slíkar aðgerðir geti falið í sér umtalsverða röskun á veiði en það er líka sagt, með leyfi forseta, að þessar aðgerðir séu taldar almennar og lítilvægar sem landeigendur þurfi að þola bótalaust. Það er nú bara þannig að það er líka atvinnugrein að stunda laxveiðar og það er enginn sem er að fara að borga veiðileyfi í laxveiðiá þar sem verið er að veiða eldislaxa. Þannig að mig langar að spyrja þingmanninn hvort hún sé ekki sammála mér (Forseti hringir.) í því að þetta sé sértækt inngrip sem geti verið ófyrirséð að umfangi og valdið verulegu tjóni og hvort þingmanninum finnist þá ekki eðlilegt að það tjón sé bætt, vegna þess að þegar þarf að grípa til slíkra aðgerða er enginn sem er að veiða í ánum og þá þarf að bæta það.