lagareldi.
Virðulegur forseti. Þetta er fín spurning hjá þingmanninum um vöktun í ám. Það er ekki hægt að neyða fyrirtæki sem selja laxveiðiréttindi í ám til að taka upp vöktunarkerfi. Eins og ég skil þetta er það val. En ég myndi halda að það að vera með vöktunarkerfi í ánum sé bara eitt mikilvægasta tækið sem við höfum til þess að passa upp á að eldislax gangi ekki upp í árnar. Ég held að það sé ákveðin grunnforsenda að við pössum upp á það og ég held að það sé mjög mikilvægt að komi til óhapps eða slysasleppinga fái árnar það bætt þannig að þær þurfi ekki að standa straum af kostnaði við að hreinsa upp árnar. Mér finnst það bara algerlega eðlilegt og ég held að þetta sé þáttur sem væri vert að skoða í nefndinni, hvernig því er háttað. Það þarf auðvitað tvo til og þeir sem leigja út árnar og eiga þær þurfa þá að hleypa eftirlitinu inn í árnar og það þarf einhver að koma til að hreinsa þær. En það er ekki eðlilegt að þeir sem eiga árnar sitji uppi með hreinsunarkostnaðinn, ég er sammála hv. þingmanni í því. Er ég að gleyma einhverri spurningu? Það er alveg sjálfsagt ef þú vilt bæta henni við þar sem ég á hérna 20 sekúndur eftir. (IngD: … þegar er verið að hreinsa árnar. )Ég hafði nú ekki hugsað þann anga af því en ég held að það sé bara fínt fyrir nefndina að skoða það. Þessar laxveiðiár eru gríðarlega dýrar margar hverjar og verða náttúrlega af umtalsverðum tekjum þegar þær eru lokaðar og ég held að það sé bara eðlilegt að tekjutap þeirra verði skoðað. Mér finnst það algjörlega eðlilegt.