lagareldi.
Frú forseti. Ég vil þakka hæstv. atvinnuvegaráðherra fyrir hennar framsögu á þeim frumvörpum sem hér liggja fyrir um lagareldi annars vegar og lax- og silungsveiði hins vegar. Ég tel þetta tímabært frumvarp sem við ræðum hér í dag, um lagareldi, það felur í sér stórt framfaraskref fyrir umgjörð atvinnugreinarinnar, eftirlit með henni og umhverfismálum. Samfylkingin hefur skýra stefnu um fiskeldi og styður áframhaldandi uppbyggingu greinarinnar. Í stefnunni segir þó m.a. að framtíðarþróun og verðmætasköpun í greininni verði að byggja á skýrum kröfum um sjálfbæra nýtingu með áherslu á traust eftirlit, vöktun og rannsóknir. Í stefnu flokksins segir einnig að taka verði af festu á slysasleppingum þannig að þeim fylgi þung viðurlög fyrir fiskeldisfyrirtæki. Að auki segir í stefnu Samfylkingarinnar að það þurfi sterka hvata til þróunar og notkunar á tækni með lokaðar sjókvíar og ófrjóan lax og að til langs tíma sé þetta lykilatriði svo fiskeldi fái þrifist í sátt við náttúruna og villta laxastofna. Annar lykilþáttur í stefnu okkar í þessum málaflokki er að lýðræðisleg aðkoma íbúa að ákvörðunum um uppbyggingu fiskeldis í umhverfi þeirra sé tryggð og að tekjur skili sér til nærsamfélagsins og þjóðarinnar allrar.
Ég tel þetta frumvarp mæta þessum atriðum vel en það eru nokkrir punktar sem mig langar að nefna hérna sérstaklega áður en málið fer til nefndar. Í fyrsta lagi finnst mér mikilvægt að eftirlit með greininni sé aðgengilegt á þeim stöðum þar sem starfsemin í greininni fer fram og vil ég þar nefna Vestfirði og Austfirði sérstaklega. Í öðru lagi langar mig að nefna að mér finnst mjög jákvætt að stefnt sé að því að leggja niður Fiskeldissjóð og breyta því fyrirkomulagi sem ríkt hefur varðandi tekjustreymi til sveitarfélaganna þar sem fiskurinn er alinn og unninn. Nýtt fyrirkomulag, samfélagsgjald, eins og kemur fram í frumvarpinu, þarf að vera í sátt við sveitarfélögin, það er mikilvægt að svo sé. Í þriðja lagi er mikilvægt að það sé verið að setja inn hvata svo fyrirtæki hafi það á radarnum að horfa til ófrjórra laxa og lokaðra sjókvía þegar fram líða stundir. Í fjórða lagi tel ég gott að MAST hafi samkvæmt frumvarpinu heimild til að taka á brotum á lögum og reglum og hreinlega endurkalla leyfi ef fyrirtæki, með ítrekuðum brotum, bæta sig ekki. Í fimmta lagi tel ég rétt að halda því til haga að það verður áfram svo að framsal á útgefnum leyfum verður óheimilt sem áður.
Hér hefur verið komið aðeins inn á strandsvæðisskipulagið og það er mjög mikilvægt að það sé líka horft til þess í þessari vinnu. Sú sem hér stendur sat í svæðisráði við gerð strandsvæðisskipulags Austurlands, og það var bara mjög mikilvægt að þegar við fórum í þá vinnu, þá var ég bæjarfulltrúi, þá fengu sveitarfélögin aðkomu að þessu máli sem var mjög gott, enda varðar strandsvæðisskipulag margt annað en þetta. En þetta er mjög mikilvægt, þá hafa ráðherra og aðrir þetta skipulag til að horfa til og að gerð þess koma hagaðilar og aðrir.
Hér hefur verið komið inn á friðun eyðifjarða og það var eins fyrir austan og vestan, það var horft til þess að eyðifirðirnir okkar fengju að vera friði enda er þá horft til þess að þar vantar alla innviði, þar er ekki rafmagn, jafnvel vatn, vegir, bryggjur og annað, til þess að eldi gangi eftir.
Einnig langar mig að nefna að mér finnst mikilvægt að horfa til samfélaga fyrir austan og vestan þar sem sjókvíaeldi hefur orðið mikilvæg atvinnugrein. Störf og búsetuskilyrði fjölskyldna eru undir. Ég veit að margir eru mótfallnir þessari atvinnugrein og upp hafa komið atvik sem eru óásættanleg en við strikum ekki yfir heila atvinnugrein. Því er mikilvægt að við setjum skýran lagaramma sem virkar til framtíðar. Í því samhengi er mikilvægt líka að hafa í huga að það er endurskoðunarákvæði í þessu frumvarpi árið 2030.
Frú forseti. Ég vil bara þakka góðar umræður og góð innlegg hérna í málinu í dag og það er mikilvægt að það komist í þinglega meðferð til hv. atvinnuveganefndar þar sem frumvarpið verður skoðað vel og vandað til verka.