lagareldi.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Eydísi Ásbjörnsdóttur fyrir ágætisræðu. Það sem mig langar aðeins að velta upp með hv. þingmanni er ferðamannavinkillinn á þetta. Ég hafði ekki tíma áðan til að ræða við hv. Vestfjarðaþingmann Örnu Láru Jónsdóttur um það, en sjálfur tel ég ákveðna sjónmengun af því að vera með kvíar inni í fallegum fjörðum. Sumir telja það ekki. En fyrsta spurning til hv. þingmanns er: Hvað finnst honum um það? Auðvitað eru þarna ákveðnir hagsmunir og kannski trompa fjárhagslegir hagsmunir, efnahagslegir hagsmunir, þetta. Og þannig að það sé bara áréttað hér í pontu: Ef það verður, eða ekki ef, heldur þegar það verður slysaslepping og eldisfiskar ganga upp í ár þá er það ekki eins og menn fari bara með ryksugu í ána og sæki allan eldisfiskinn. Við sáum það á myndum hér síðasta sumar þegar norskir kafarar voru með skutulbyssur að svamla um í hyljum hinna ýmsu áa, að sú aðferð getur vissulega dugað eitthvað til að ná einhverjum fiskum og það að fljúga með dróna yfir og meta það hvaða fiskar eru eldisfiskar og hverjir ekki. Það sem mig langaði kannski að spyrja hv. þingmann um er: Er eitthvað meira sem hv. þingmaður myndi vilja sjá þá í viðbót við það hvernig hægt væri að hreinsa árnar betur heldur en með þessum skutulbyssum og að froskmenn séu kafandi í hyljina?