lagareldi.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir sitt svar við mínu andsvari og er sérstaklega ánægður með síðustu orð hv. þingmanns: okkar ábyrgð, því að ég held að stjórnmálamenn taki allt of sjaldan ábyrgð á því sem þeir gera hér á þinginu. En hér eru þessi tvö sjónarmið: Það eru veiðiréttarhafar og þeir landeigendur sem eiga árnar. Það er þekkt að lax getur gengið óravegu og hann gerir það. Sama er með laxalúsina, hún getur farið hundruð kílómetra með hafstraumum og hún er sérstaklega hættuleg fyrir gönguseiði sem eru að ganga til sjávar eftir að hafa verið nokkur ár í ánni, kannski þrjú til fimm ár í ánni, og bara það að gönguseiði úr einni á sem kannski 500 laxar ganga í — þetta getur haft veruleg áhrif á veiðitölur þeirrar ár og á beina hagsmuni laxabóndans eða þess sem á ána. Þannig að ég tel þetta frumvarp vera mikla bót miðað við það sem er í gangi núna. En einhvern veginn verðum við að reyna að sætta þessa hópa og það er djúp gjá á milli þeirra eins og staðan er í dag. Ég heyri það á hv. þingmanni að hann vill allt gera til að tryggja öryggi í opnu sjókvíaeldi en það er einhvern veginn þannig að það eru bara árnar með villtu löxunum sem geta tapað. Auðvitað tapar sjókvíaeldið ef þeir missa fisk úr kvíunum.
Mig langar að spyrja hv. þingmann að lokum: Er einhvers konar trygging eða einhver orð sem maður getur látið falla hér í pontu sem hjálpa veiðiréttarhöfum þannig að þeim líði betur með þetta frumvarp?