157. löggjafarþing — 87. fundur,  23. mars 2026.

lagareldi.

529. mál
[18:48]
Horfa

Eydís Ásbjörnsdóttir (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Pétri Zimsen fyrir síðara andsvarið. Við þurfum að tryggja eftirlit og rannsóknir og eftirlit á staðnum þar sem lagareldið fer fram. Það er gríðarlega mikilvægt að tryggja það. Það er eflaust skýrt í þessu frumvarpi og tekið vel á því. Við þurfum að hafa hvata fyrir vistvænar leiðir eins og nýtingu lokaðs eldisbúnaðar og það er einmitt í þessu frumvarpi. Þar eru fjárhagslegir hvatar í formi skattafsláttar þar sem fyrsta kynslóð fisks úr lokuðu eldi eða ófrjóum stofni er undanþegin framleiðslugjaldi og veittur er frekari afsláttur á síðari stigum. Það er skemmri hvíld á eldissvæðum þar sem er notast við þennan lokaða búnað og það eru rannsóknarleyfi og greiðari leið fyrir einkaaðila til að stunda rannsóknir á lokuðum eldisbúnaði. Þannig að það er alveg hvati til að fá þá sem eru í þessum iðnaði til að fara þessa leið. En við þurfum auðvitað að hafa skýran lagaramma og fylgja honum ef það eru ítrekuð brot eða annað. Auðvitað getur ýmislegt gerst og það verða alltaf einhver slys, en þá þarf líka að rannsaka hvað gerist og af hverju og hvað veldur. Ég vona að ég hafi svarað hv. þingmanni.