lagareldi.
Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. atvinnuvegaráðherra kærlega fyrir hjálpina, að koma hingað upp í pontu með ræðuna mína, og sömuleiðis vil ég þakka henni fyrir að leggja fram þetta frumvarp og óska henni til hamingju með það. Við ræðum hér frumvarp hæstv. atvinnuvegaráðherra um lagareldi. Ég fagna þessu frumvarpi og tel að með því séum við að taka skref í rétta átt til að búa þessari atvinnugrein betri skilyrði. Sömuleiðis er þetta frumvarp til þess fallið að búa betur um hnútana og lágmarka vistspor þessarar atvinnugreinar.
Forseti. Þegar maður skoðar núgildandi fiskeldislög, nr. 71/2008, og þá greinargerð sem þeim fylgdi, er ljóst að þau eru smíðuð fyrir allt annað umhverfi miðað við hvernig þróunin hefur verið. Þau lög voru að vísu stagbætt en eru enn mjög ófullkomin. Þá er óþarfi að rekja í löngu máli þær ógöngur sem síðasta ríkisstjórn rataði í þegar þáverandi ráðherra málaflokksins lagði fram frumvarp um lagareldi. Staðan er þannig í dag að lagaramminn eins og hann lítur út í dag í kringum þessa atvinnugrein þjónar að mörgu leyti hvorki þeim fyrirtækjum sem starfa í þessari grein, ekki samfélögunum sem reiða sig á þessa atvinnugrein né náttúrunni. Þegar ég segi að lagaramminn þjóni ekki samfélögunum þá hefur verið mikið rætt um Fiskeldissjóð sem á að leggja niður og ég tek undir með hv. þm. Örnu Láru Jónsdóttur og Eydísi Ásbjörnsdóttur að það er mikið fagnaðarefni að hér eigi að leggja þann sjóð niður og gjaldið eigi þess í stað að renna beint til sveitarfélaganna sem um ræðir.
Áður en lengra er haldið er ágætt að horfa á nokkrar staðreyndir. Fyrir það fyrsta, eins og kemur fram í greinargerð frumvarpsins, voru útflutningsverðmæti fiskeldis metin á um 55 milljarða á ári. Þá starfa 900 manns í fiskeldi á Íslandi. Af þeim störfum eru fjöldamörg sérhæfð störf sem krefjast mikillar menntunar. Þá er fyllsta ástæða til að halda því kirfilega til haga að samkvæmt upplýsingum á heimasíðu Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi þá koma 80% heildaratvinnutekna í greininni í hlut íbúa utan höfuðborgarsvæðisins. Hér er um verulegar fjárhæðir að ræða því að á árinu 2022 námu heildaratvinnutekjur greinarinnar rúmum 4,7 milljörðum kr. samkvæmt gögnum Hagstofunnar.
Í þessu samhengi verðum við líka að horfa til þess að þessar fjárfestingar og þessi störf hafa orðið til á stöðum sem í gegnum tíðina hafa orðið fyrir miklum skakkaföllum. Hér erum við t.d. að tala um staði eins og Bíldudal, Patreksfjörð og Djúpavog. Þótt það fari ekki alltaf mest fyrir því í allri umræðu þá er þetta frumvarp einnig gríðarlega mikilvægt til að styðja við og skapa nútímalega umgjörð fyrir fiskeldi á landi, þ.e. landeldi. Það er ein af þeim atvinnugreinum sem hraðast fer vaxandi hér á landi og þar eru gríðarlegir möguleikar á frekari verðmætasköpun.
Forseti. Allri verðmætasköpun fylgja einhver spor á vistkerfið og umhverfið. Fiskeldi er þar engin undantekning. Það er mikilvægt að taka umhverfisáhrif fiskeldis alvarlega því að afleiðingarnar af því að gera það ekki geta orðið mjög alvarlegar. Ég vil þó í þessu samhengi, forseti, árétta að þetta frumvarp sem við fjöllum um hér í dag gerir ekki eitthvað heimilt sem áður var óheimilt. Fiskeldi er nú þegar gríðarlega mikilvægur atvinnuvegur, bæði á Vestfjörðum og Austfjörðum, og það er á ábyrgð okkar sem kjörinna fulltrúa að búa svo um hnútana að standa vörð um lífsviðurværi þeirra sem hagsmuna eiga að gæta og að þau geti treyst því að geta haldið áfram að lifa og starfa í sinni heimabyggð. Á sama tíma eiga fjöldamargir mikil verðmæti í sínum ám og vötnum og okkur ber að vernda hagsmuni þessa fólks líka. Þarna er meðalvegur sem við verðum að finna og verðum að rata. Ég tek ábyrgð mína sem nefndarmaður í atvinnuveganefnd mjög alvarlega og trúi því að okkur muni lánast að finna þennan meðalveg.
Forseti. Í ljósi þess að það hefur borið á þeirri gagnrýni í opinberri umræðu að þetta frumvarp inniberi ekki friðun einstaks svæðis eða einstakra svæða, vil ég árétta að ég skil þau sjónarmið. En ég er þó sammála því mati ráðherra að lög um lagareldi séu ekki heppilegt tæki til að kveða á um friðun einstakra fjarða heldur sé það betur til þess fallið að sú ákvörðun sé tekin í skipulagsvinnu haf- og strandsvæða, eins og kom fram í framsöguræðu hæstv. ráðherra. Það væri þá gert í samstarfi og með viðkomandi sveitarfélögum fremur en án þeirra.
Forseti. Ég ítreka að ég fagna þessu frumvarpi. Okkar sem sitjum í atvinnuveganefnd bíður vandasamt verk að rýna þetta frumvarp, lesa umsagnir og heyra ólík sjónarmið þeirra sem sækja nefndina heim. Ég hlakka til þess verkefnis og eins og ég nefndi áður þá tek ég þá ábyrgð mína sem nefndarmaður í atvinnuveganefnd mjög alvarlega. — Góðar stundir.