lagareldi.
Virðulegi forseti. Við erum hér að ræða, eins og kom fram hjá hv. þm. Jóni Pétri Zimsen, stórt mál. Nú hefur fækkað á mælendaskránni. Það er ekki til komið vegna þess að fólk, hv. þingmenn, alla vega í stjórnarandstöðunni, hafi ekki áhuga á því heldur vorum við að brjóta blað núna, sem mér fannst vera sorglegt. Ég er nú ekki alveg nýr hér inni á þingi en fram til þessa hefur það verið algjör regla að það hefur ekki hvarflað að nokkrum manni að halda þingfund á sama tíma og flokkarnir eru að bjóða bændum til sín. Það hefur verið algjör regla og aldrei nokkrum manni dottið í hug að koma með hugmyndir um annað. Mér þykir það mjög miður, virðulegi forseti, að við séum að horfa á hæstv. ríkisstjórn stíga þessi skref. Kannski hljómar þetta sem lítið mál og kannski er það lítið mál en þetta snýst um virðingu fyrir þinginu og virðingu fyrir bændum þessa lands. Ég ætla nú að halda mína ræðu og fer síðan til móts við bændur en missi væntanlega af matnum en það er allt í lagi. Ég má við því, auðveldlega.
Mér fannst hv. þm. Jón Pétur Zimsen taka ágætlega utan um þetta áðan. Hér er um að ræða mál sem eru í eðli sínu stórmál. Þetta eru mál sem horfa til framtíðar og því miður verður að segjast að þetta hefur farið svolítið mikið í skotgrafir. Svo sannarlega eru hagsmunir undir en það er vont ef það er verið að etja þeim hvorum gegn öðrum. Það liggur alveg fyrir að fiskeldið er orðið stórt á íslenskan mælikvarða, þá er ég tala um sjókvíaeldið, og á möguleika á að verða enn stærra. Það er auðvitað bara mjög gott og það er enginn vafi að það hefur hjálpað mjög ákveðnum byggðum sem áttu undir högg að sækja og verður bara að segjast eins og er að fyrir okkur sem höfum komið mjög reglulega á undanförnum áratugum til t.d. Vestfjarða er gríðarlega mikil breyting eftir að fiskeldið kom þar og bjartara yfir byggðinni og aftur farið að fjölga fólki og mjög jákvætt að sjá það allt saman.
En það eru líka byggðir sem eiga mjög mikið undir þessum hefðbundnu laxveiðum og laxveiðiám. Ég get t.d. nefnt bara Dalasýslu sem er mjög tengd því. Þar hefur orðið mikil fækkun. Þar er mikið af gjöfulum ám og þar eru miklir efnahagslegir hagsmunir undir fyrir það fólk sem þar býr. Það sama má segja um ýmsar sveitir landsins, á Vesturlandi, í Borgarfirði, á Norðurlandi og auðvitað Suðurlandi og Austurlandi, þannig að hér er mikið undir. Svo berum við auðvitað ábyrgð á lífríkinu og ef okkur mistekst þar þá getur það haft mjög alvarlegar afleiðingar í för með sér, fyrir utan auðvitað þann álitshnekki sem því fylgir.
Áhyggjur mínar þegar ég skoða þetta mál eru að menn séu — af því að ég vonast til að hv. þingnefnd fái að vinna þetta mál vel því það skiptir gríðarlega miklu máli. Ég vil trúa því að það sé hægt að ná hvoru tveggja, hafa hér samkeppnishæfa grein, því hún verður að vera samkeppnishæf ef hún ætlar að ná árangri — það eru líka mun meiri líkur á því að hún geti staðið sig vel þegar kemur að öryggisþáttum og umhverfismálum ef fyrirtækin eru stöndug. Ég hef áhyggjur af samkeppnishæfninni út af skattalegu umhverfi. Ég veit að það er komið til móts við það sjónarmið í frumvarpinu en ég ætla ekkert að kveða upp úr um það hér nákvæmlega hvað er rétt og hvað er rangt í því en það eru uppi raddir um það frá hagsmunaaðilum að hún sé skattlögð mjög, og mun meira en gerist í þeim löndum sem við berum okkur saman við og erum að keppa við um markaði. Ég vonast til að menn skoði það sérstaklega. Á sama hátt skiptir líka miklu máli, virðulegi forseti, að við séum að gera allt hvað við getum til að þetta sé eins öruggt eins og getur verið og að þeim sem standa sig vel sé umbunað en á sama tíma sé þeim refsað og þeir látnir sæta ábyrgð sem standa sig ekki í því að sinna þessari atvinnugrein með ábyrgð.
Ég veit, virðulegi forseti, að þegar kemur — af því að hér er líka verið að ræða frumvarp til laga um breytingu á lögum um lax- og silungsveiði — að því umhverfi er eftirliti stórlega ábótavant, þó að hér séu eftirlitsstofnanir, og eftirfylgni með brotum er nær engin. Ég þekki þau mál mjög vel og það er alveg ótrúlegt þegar maður upplifir það á eigin skinni hvernig stjórnvöld taka því með léttvægum og ábyrgðarlausum hætti að fylgja eftir augljósum brotum, jafnvel mjög alvarlegum brotum. Sama umræða hefur uppi verið þegar kemur að fiskeldinu. Þegar eitthvað kemur upp, þegar verða slys og stundum alvarleg slys, þá finnur maður að þeir sem eru, getum við sagt, villta lax megin í lífinu hafa miklar áhyggjur af því umhverfi sem er og eftirfylgninni varðandi eftirlitið og þegar brot koma upp. Hv. þm. Jón Pétur Zimsen fór hér yfir eitthvað sem við gerðum líka grín að, að það voru einhverjir norskir kafarar hérna í einhverjum ám með skutulbyssur að reyna að ná í einhverja eldislaxa. Það var mál sem vakti mikla athygli og ég held að það væri mikilvægt fyrir hv. nefnd að fara yfir hvernig það ferli var og sömuleiðis hvað það þýddi, hverjar afleiðingarnar voru og gera það mál aðeins upp til að læra af því.
Það liggur alveg fyrir þó að málið sé ekki komið lengra, en það á auðvitað eftir að koma fram í umsögnum, að menn hafa áhyggjur, t.d. veiðiréttarhafar, þeir hafa áhyggjur af, eins og ég var með í þessu stutta andsvari við hæstv. ráðherra áðan, að þeir hefðu raunhæfan aðgang að fjármagni til vöktunar og rannsókna og verndaraðgerða og þá í stað þess að þeir séu studdir með einhverjum hætti þá muni það fara inn í umhverfissjóð sjókvíaeldis og fiskeldissjóð, að þeir fjármunir renni í ríkissjóð við þessa gildistöku. Sömuleiðis eru ákvæði þarna inni um aðgangsskyldu að ám sem þessir sömu aðilar hafa miklar áhyggjur af. Reyndar þegar þú talar um veiðiréttarhafa þá eru það nú oft bændur, sem við erum ekki enn þá komnir í að fá að hitta en fáum að hitta á eftir, og þar eru áhyggjur af því að þessi lagaskylda gangi mjög langt um aðgang að ám. Ég veit að það eru sjónarmið um það að menn vilja sjá að vöktun fari fram í samráði og eftir samkomulagi við veiðifélög og veiðiréttarhafa með skýrum verkferlum, meðalhófi og lágmarksfyrirvara en frumvarpið fer ekki í þá átt. Þetta er mál sem skiptir máli. Ég held að vísu að menn þurfi ekki áhyggjur af því að veiðiréttarhafar og veiðifélög hafi mikinn áhuga á því að standa vel að vöktun, bæði á þessu og öðru. Fólk þarf að vera mjög skammsýnt ef það sér ekki hversu skynsamlegt það er, þannig að ég vona að hv. þingnefnd fari í það og skoði það.
Mér fannst áhugavert í máli hæstv. ráðherra, og ég þekki bara ekki útfærsluna, en mér fannst alla vega stóra hugmyndin að þegar við erum að fara í leiðir sem menn eru sammála um að séu öruggastar; lokaðar kvíar, ófrjóan fisk, að þar séu fjárhagslegir hvatar til að þeir sem stundi þetta eldi fari í það. Það væri nú gaman að sjá að við stigjum svolítið hugrökk og djörf skref í þá áttina, því að auðvitað kostar fjármuni að fara nýjar leiðir. Þú tekur áhættu með því að fara nýjar leiðir. Það væri nú gaman að sjá fréttir af því, af því að það eru ekki bara fréttir innan lands heldur líka utan, að við Íslendingar værum þeir sem gengu lengst í því og ætlum að vera fremstir í því að vera með eins öruggar aðferðir við sjókvíaeldi og mögulegt er.
Ég spurði hæstv. ráðherra út í sólarlagsákvæði og hæstv. ráðherra útskýrði það ágætlega af hverju þeir treystu sér ekki til að setja það inn í frumvarpið. En maður gæti hugsað sér að við myndum stíga skrefið í hina áttina, að vera með virkilega mikla fjárhagslega hvata fyrir þá sem vilja stíga þessi skref. Það myndi gera það að verkum að við værum fremst meðal jafningja og það myndi vekja athygli langt út fyrir landsteinana og ef vel er að verki staðið þá gæti það nýst við sölu afurðanna. Þá er eitthvað sem allir geta hagnast á. Þó að einhver gæti sagt, sem skoðar excel-skjalið, að það myndi kosta ríkissjóð í einhverjum ívilnunum eitthvað á einhverjum árum þá er það fjárfesting sem, held ég, allir væru sammála um að væri góð.
Hér er líka vísað til landeldis sem er gríðarlega spennandi atvinnugrein og þar er mikil fjárfesting, í það minnsta bæði í Vestmannaeyjum og sömuleiðis í Ölfusi, kannski á fleiri stöðum. Þar eru menn að fara í landeldi í laxi, framtíðarsamvinnu í landeldi bleikju, sem hefur gengið einstaklega vel eftir því sem ég best veit. Ég hef að vísu aldrei skilið af hverju það tekst ekki meira á flug en þar eru allar þær áhyggjur sem hér hefur verið vísað í varðandi sýkingar, hvort það er lús eða hvað það er, menn þurfa ekki að hafa áhyggjur, því að menn stýra þeim umhverfisþáttum alveg. Sömuleiðis eru tækifæri í úrganginum sem þaðan kemur, að nýta hann með umhverfisvænum hætti.
Þar er eitt af því sem við þurfum að hafa til þess að fara í landeldi sem er að við þurfum orku. Það hangir nefnilega mjög margt á grænu orkunni okkar. En mér finnst þetta vera mjög spennandi og vonandi sjáum við þessar fjárfestingar sem er farið í núna — sem einhver sagði að væru stærstu fjárfestingar í atvinnugreinum á Íslandi núna — ganga vel því að við höfum alveg næga möguleika í því. Við eigum græna orku, við eigum ja, besta vatn í heimi, alla vega með því allra besta. Það er ekki á mörgum stöðum eða nokkrum stöðum sem þú færð vatn með sömu gæðum. Við erum sömuleiðis með góða samninga inn á stærstu markaði þannig að það væri eitthvað sem væri gríðarlega gott ef það yrði að veruleika.
Virðulegi forseti. Við erum að ræða þetta í skugga þess að hér ákvað ríkisstjórnarmeirihlutinn að stíga skref sem hljómar kannski ekki mikið fyrir þeim sem eru að hlusta á þetta en mér finnst það vera mjög dapurt og sorglegt, eftir að vera búinn að vera hér síðan 2003, að menn skuli fótumtroða þessa hefð og venju sem er búin að vera frá 1899. Ég veit ekki alveg af hverju menn þurftu að gera það. Það hefur áhrif á umræðuna sem tengist að vísu mjög hagsmunum bænda, ekki kannski þetta hefðbundna sjókvíaeldi en þegar kemur að laxveiðum og veiðiréttarhöfum þá er þetta oftar en ekki mikil búbót fyrir bændur þessa lands sem verða nú seint taldir fá gríðarlega miklar tekjur af sinni atvinnustarfsemi.
Burt séð frá einstökum hópum og einstökum landsvæðum þá hlýtur það að vera verkefni okkar að sjá til þess að við séum hér með fiskeldi bæði á sjó og landi sem er öruggt og framleiðir gæðavöru með góðri afkomu í góðri sátt við náttúruna af því að það eru gríðarleg verðmæti í villtum laxastofni og okkar lífríki og við berum ábyrgð þar. Við berum ábyrgð á lífríkinu okkar og við viljum skila því jafn góðu og helst betra til komandi kynslóða. Ég er alveg sannfærður um að ef menn ætla ekki að keyra þetta í gegn í einhverju offorsi í gegnum þingið og gera eins og hæstv. ríkisstjórn hefur nú nokkuð gert af, að neita að kalla til sérfræðinga eða hleypa þeim að og taka þetta í gegnum ofbeldi í gegnum þingið, þá er ég alveg sannfærður um að við getum náð góðum árangri og í það minnsta þverpólitískri sátt. (Forseti hringir.) Ég vonast til þess að það verði niðurstaðan og það verður að vera niðurstaðan því það er mjög mikið undir, virðulegi forseti.