lagareldi.
Frú forseti. Við ræðum hér þetta mál er varðar nýja heildarlöggjöf sem er ætlað að ná utan um lagareldi á Íslandi. Þetta hverfist auðvitað mest um laxeldi, eins og umræðan hér í dag hefur dregið fram, en það eru fleiri þættir sem eru þarna undir og það verður áhugavert í hv. atvinnuveganefnd þegar þar að kemur að skoða þá þætti sérstaklega. Sömuleiðis er rétt áður en ég fer inn í eldismálið að halda því til haga að það er ánægjulegt að málið sem er mælt fyrir hér samhliða, er snýr að fiskrækt í ám landsins, sé komið fram. Það er ýmislegt til bóta þar sem mun styðja við það að verja villta íslenska laxastofninn og staðbundna stofna með tryggari hætti en kannski verið hefur á köflum.
En að málinu sem hér er undir. Þetta er auðvitað metnaðarfullt frumvarp, 131 blaðsíða, ef ég man rétt, frá hæstv. ráðherra sem fyrir okkur liggur nú að fara í gegnum. Það eru ýmis ákvæði þarna sem kalla á raunverulega skoðun og kalla á að lagt verði mat á það sem hæstv. ráðherra leggur til út frá skynsemisjónarmiðum gagnvart þeirri staðreynd að hér á Alþingi er núna, held ég að óhætt sé að segja, enginn flokkur sem leggst gegn því að þessi starfsemi verði viðhöfð og verði hér til framtíðar stunduð á Íslandi, þ.e. sjókvíaeldi á laxi. Ef við ætlum okkur að styðja hér við vöxt og velsæld samfélagsins er mikilvægt að við nýtum þær auðlindir sem við höfum og ein þeirra auðlinda eru þessir bláu akrar, sem stundum eru kallaðir, þar sem eldið er stundað. Sú mikla verðmætasköpun og sú gjörbreytta staða sem ýmis samfélög njóta þar sem þessi starfsemi er stunduð — til að setja það í samhengi held ég að að mörgu leyti séu þetta áhrif á við þau þegar Hvalfjarðargöngin tengdu Akranes og Borgarfjarðarsvæðið með þeim hætti við höfuðborgarsvæðið sem raun er og gjörbreyttu forsendum til atvinnurekstrar og atvinnuþátttöku innan þeirra svæða. Þetta er gjörbreyting á þessum svæðum. Staðan á sunnanverðum Vestfjörðum er allt önnur en hún var og sama á við um önnur svæði.
Að þessu sögðu verðum við auðvitað líka að gæta þess að líta til með hagsmunum villta íslenska laxastofnsins þannig að staða stofnsins verði sem best tryggð til langrar framtíðar. Það held ég, og þetta sama sagði ég árið 2019 og síðan í þeim breytingum sem voru gerðar í millitíðinni, að verði best gert með því að fyrirtæki sem þessa starfsemi stunda séu sterk fjárhagslega, tæknilega og þekkingarlega. Og það held ég að verði ekki gert með þeirri nálgun sem viðhöfð hefur verið hér undanfarið, sem er gjaldtaka á eldisfyrirtækin, sem ég held að sé úr hófi fram. Það þrengir að ef allt er blóðmjólkað, sérstaklega í gegnum þennan fjárfestingarfasa sem þessi starfsemi og þessi iðnaður er enn þá í. Atvinnugreinin er ung á Íslandi, í þessum fasa sem nú er í gangi. Hún er ung, það er mikil fjárfestingarþörf og það er gríðarlega mikið undir. Mér er til efs að nokkur önnur atvinnugrein hafi, í seinni tíma sögu hið minnsta, orðið fyrir viðlíka sókn í rentusækni stjórnvalda og sjókvíaeldið. Það eitt og sér grefur undan svigrúmi, ef horft er til lengri tíma, til þess að gera hluti eins vel og nokkur kostur er, að notast alltaf við albestu tækni og þar fram eftir götunum. Til þess að það sé raunin verðum við að gefa greininni, fyrirtækjunum, smá súrefni til að vinna með. Þannig að ég bara geld varhuga við því. Það er verið, og hæstv. ráðherra á hrós skilið fyrir það, að stíga til baka að nokkru marki varðandi gjaldtöku en það er samt þannig með t.d. framleiðslugjaldið sem við höfum fjallað um, í 62.–65. gr., að það er skref í rétta átt en gjaldtakan sýnist mér áfram verða há í alþjóðlegum samanburði og þetta grunngjald upp á 25 kr. á kíló er að leggjast á óháð rekstrarniðurstöðu. Við sjáum bara hvernig rekstur þessara mikilvægu fyrirtækja gengur nú um stundir. Þetta eru erfiðir tímar og hluthafar eru að setja til viðbótar eigið fé inn í félögin, flest ef ekki öll, og upphæðir sem skipta máli. Það er hættulegt þegar menn horfa á svona gjaldtöku óháð rekstrarniðurstöðu því að það getur skert samkeppnisstöðu og fjárfestingargetu og fjárfestingargetan skiptir svo miklu máli ef við síðan í hina röndina gerum kröfu um það að hér verði allt gert sem hægt er til að verja íslenska villta laxastofninn. Þarna geta menn ekki bæði átt kökuna og étið hana.
Ég kom inn á það í andsvari hér við hæstv. ráðherra við upphaf umræðunnar að mér þykir affallagjaldið sem er fjallað um í 58. og 59. gr. — ég hef efasemdir um að það sé skynsamleg nálgun í þessum efnum en látum á það reyna í vinnslu nefndarinnar. Þetta er skattur á tjón. Það er auðvitað aldrei markmið þeirra sem í þessum rekstri standa að afföll verði. Markmiðið er að hafa afföllin sem allra, allra minnst. Það er augljóst og þarf ekki að fara mörgum orðum um það.
Síðan er atriði sem mig langar sérstaklega að nefna og er nauðsynlegt að verði kafað vel ofan í í nefndinni og það er það sem snýr að innköllun laxahlutar. Það er í rauninni ákvæði sem jafngildir kröfu um 100% nýtingu heimilda, sem sagt til eldis á laxi í sjó. Það er, leyfi ég mér að segja, ómögulegt í líffræðilegum rekstri. Það verða sveiflur innan svæða og kvía, það er náttúran, það er lífið. Það verða sveiflur þannig að það að setja inn stífa kröfu um 100% nýtingu held ég að sé skynsamlegt að skoða með gagnrýnum augum. Ég held að það verði líka að halda því til haga að ef fyrirtæki sjá fram á að missa laxahlut á grundvelli þess að hafa ekki fullnýtt heimildir, þá sé ég ekki fyrir mér — og nú verð ég að hafa þann fyrirvara á að ég missti af nokkrum ræðum hér í dag þannig að kannski hefur þetta komið fram — til að mynda í starfseminni fyrir austan þar sem er eitt fyrirtæki að störfum, ég sé bara ekki fyrir mér í praxís innköllun laxahlutar á grundvelli þess að ekki takist að nýta leyfi 100% innan þess tíma sem lagður er til. Ég sé ekki fyrir mér hverju megi endurúthluta af þeim hlut sem af viðkomandi fyrirtæki er tekinn á grundvelli þessarar reglu, sem ég held að sé ekki hugsuð alveg til enda. Það er auðvitað líka sjónarmið varðandi laxahlutinn sem þarf að hafa í huga er varðar stjórnarskrárvarin réttindi, en ég ætla á þessum stutta tíma sem mér gefst núna ekki að fara út í þau. En það eru atriði sem þarf að huga að varðandi frammistöðumat við endurnýjun leyfa. Það verður auðvitað að ganga út frá því — hér er innleidd einhver regla er varðar það að fjórar uppákomur opni á það að rekstrarleyfi verði ekki endurnýjað og ég held að við þurfum í hv. atvinnuveganefnd að reyna að ramma það inn með skýrari hætti hvað þarf til til þess að þetta verði nálgunin vegna þess að allur rekstur verður auðvitað að ganga út á það, til að fjárfestingar, endurnýjun og þar fram eftir götunum séu tryggð, að fyrirtæki geti gengið út frá því að meðalhófs sé gætt er varðar mat á endurnýjun leyfa og nema eitthvað alvarlegt hafi gengið á þá séu líkur til endurnýjunar meiri og miklu meiri en ekki. Og það að þetta sé að gerast, að „cut off“-ið sé þarna þremur árum fyrir lok leyfistíma, það er allt of knappur tími og þarf að færa framar á tímalínunni af augljósum ástæðum. Markmiðið hlýtur auðvitað að vera það, ef rekstur gengur eðlilega, að endurnýjun leyfa sé í raun sjálfkrafa. Og af hverju er það mikilvægt? Það er til að viðhalda fjárfestingarvilja og -getu fyrirtækjanna í gegnum líftíma leyfanna. Það versta sem getur komið fyrir hagsmuni villta íslenska laxastofnsins er að fyrirtæki finni sig í þeirri stöðu að einhvers lags sólarlagsákvæði fari að kikka inn þannig að hvati til fjárfestingar, viðhalds og uppfærslu kerfa minnki. Það þurfum við að forðast.
Það er ekki annað hægt en að nefna gríðarlega umfangsmiklar reglugerðarheimildir ráðherra í málinu. Ég verð nú að viðurkenna að ég gleymdi að gera það sem ég geri stundum, að láta tölvuna telja vísun í reglugerðarheimildir. Mér finnst líklegt að það hafi komið fram hér í umræðunni á fyrri stigum þó að ég hafi mögulega misst af því. En það eru mörg lykilatriði sem ekki er að finna í frumvarpinu og er verið að horfa til þess að þau verði útfærð síðar með reglugerð. Ég held að við hér í þinginu eigum að setja reglurnar og rammann eins og við viljum að hann sé og þessi nálgun sem hér er lögð til er allt of víðtæk hvað reglugerðarheimildir varðar.
Áður en ég fer á almennu nóturnar hérna undir lokin þá er það sem skiptir mestu máli auðvitað að samkeppnishæfnin sé í lagi. Okkur mistókst að mörgu leyti hrapallega 2019 þegar þessi löggjöf var sett upphaflega. Ég held að þar hafi menn að mörgu leyti gert mistök með galopin augun. Það var bent á flest það sem skýrsla Ríkisendurskoðunar dró fram þegar hún kom fram og það eru bæði veiðiréttarhafar, kerfið og eldisfyrirtækin, allir hafa bent á með hvaða hætti illa tókst til þá. Við verðum að gæta okkar á því að kerfið verði „business friendly“, afsakið, forseti, að ég sletti með þessum hætti, að það verði vinveitt rekstri, bara eins og með allan annan rekstur í samfélaginu. Við þurfum að hugsa þessa löggjöf út frá því að við finnum okkur ekki á sama stað og orkuframleiðsla hefur verið undirorpin núna um alllanga hríð, síðan Vinstri grænum var greitt fyrir það að skakklappast í Evrópusambandsleiðangurinn, fyrir það að fá að stoppa orkuframleiðslu í fyrirsjáanlegri framtíð á þeim tíma. Ég held að það að gera þennan lagaramma þannig útfærðan að fyrirtækin geti blómstrað sé líklegasta leiðin til þess að árangur náist í því mikilvæga verkefni að verja íslenska laxastofninn. Ég held að þessi eldisfyrirtæki sem hér starfa séu í fullum færum og ég tel mig vita og veit að þau vilja að það sé staðan til langrar framtíðar. Það ætlar enginn inn í þetta með það í huga að kasta til hendinni. Síðan er það samkeppnishæfni Íslands. Hún verður ekki tryggð nema með því að við höfum lagaramma sem þennan þannig að fyrirtæki geti vaxið, dafnað, fjárfest og sinnt sínum frumskyldum á grundvelli þeirra. Þannig að of mikil skattpíning er stórhættuleg í þeim efnum.
Síðan langar mig að segja svona rétt undir lokin, af því að þetta er nú knappur tími sem er gefinn hér í fyrstu umræðu, sem er auðvitað eina umræðan þar sem hv. þingmenn ná í skottið á hæstv. ráðherra: Það er nauðsynlegt að tryggja það, af því að ég er hérna með ályktun Landssambands veiðifélaga með mér í pontu, og við þurfum að reyna að ná einhverri sátt þar sem traust ríkir á milli aðila, veiðiréttarhafa annars vegar og eldisfyrirtækjanna hins vegar. Það hefur ekki tekist með þeim hætti sem æskilegt væri á undanförnum árum og ég held að við þurfum að hafa það í huga í vinnu nefndarinnar að nálgast málið með þeim hætti að þetta traust geti byggst upp. Ég veit og ég þekki vel vilja bænda til þess að verja laxastofninn, rétt eins og þau dýr sem bændur eiga og halda, en ég veit sömuleiðis að þeir sem stunda eldið vita hversu mikilvægt það er fyrir þann rekstur að vel takist til og að íslenski laxastofninn dafni til langrar framtíðar.
Þetta eru allt hlutir sem við þurfum að skoða (Forseti hringir.) með opnum augum og gagnrýnum í hv. atvinnuveganefnd á næstu vikum en eins og ég kom inn á í andsvari við hæstv. ráðherra hér við upphaf umræðunnar þá óttast svolítið að tíminn sé knappur. En sjáum til hvort ekki vinnst vel.