157. löggjafarþing — 87. fundur,  23. mars 2026.

lagareldi.

529. mál
[19:42]
Horfa

atvinnuvegaráðherra (Hanna Katrín Friðriksson) (V):

Frú forseti. Mig langar eiginlega bara til að nefna hér í lokin að ég þakka fyrir málefnalega umræðu. Það liggur alveg ljóst fyrir á máli þeirra þingmanna sem hér tóku til máls, sem eru velflestir, ef ég fer rétt með, einmitt í hv. atvinnuveganefnd og fá málið þess vegna til umfjöllunar og meðferðar þar inni, að það eru nákvæmlega þau atriði sem komu fram endurtekið í ræðum þingmanna sem höfð voru til hliðsjónar við gerð frumvarpsins. Það er þetta mikilvægi, að við náum jafnvægi í því að byggja upp þessa lykilatvinnugrein sem þegar er orðin, ekki bara fyrir tiltekið landsvæði heldur fyrir þjóðarbúið, og hefur alla burði til að vaxa upp í að vera enn öflugri og enn sterkari, ná jafnvægi milli þess að byggja upp þessa atvinnugrein og síðan að svara og bregðast við þeim áskorunum sem hún felur í sér, uppbyggingin eða starfsemin eins og hún er núna ekki síst. Það er dýravelferðin, það eru umhverfissjónarmiðin, það eru tengslin eða áskoranirnar fyrir villta laxastofninn og síðan að tryggja þann ramma að fyrirtæki geti vaxið og dafnað, hvort heldur það eru sjókvíafyrirtækin eða landeldið, og að við búum til þannig fjárhagslega hvata, sem eru innbyggðir í þetta frumvarp, að í sjókvíaeldinu færi menn sig yfir í lokaðar kvíar og eldi á ófrjóum laxi hratt og örugglega þegar tæknin leyfir, sem hún gerir ekki í dag.

Varðandi gjaldtökuna þá erum við að lækka skattinn umtalsvert á eldisfyrirtæki núna frá því sem síðari ríkisstjórn setti á. Verði þetta frumvarp að lögum með þessum tölum erum við samkeppnishæf, af því að samkeppnishæfnin hefur líka komið mikið við sögu hér. Verðmætasköpun og samkeppnishæfni skipta auðvitað lykilmáli fyrir okkur og þá erum við samkeppnishæf við löndin í kringum okkur sem eru líka okkar helstu keppinautar í sjókvíaeldinu.

Varðandi affallagjaldið, sem var líka töluvert rætt: Bara svona til að hnykkja á því þá myndi gjaldið, eins og frumvarpið er skrifað, ekki verða lagt á nokkur fyrirtæki núna vegna þess að afföllin eru í kringum 20%. Við erum að stíga varfærin skref til þess að draga úr þessu. Okkur þykir þetta of mikið og fyrirtæki eru þar sammála. Það er líka kostnaður í því, þannig að við vonumst til og treystum því eiginlega að við náum, á þeim fjórum árum sem aðlögunin er, að fara niður í 10%. Það er von mín að þetta gjald verði aldrei lagt á en ég er samhliða því sannfærð um að það skipti máli að hafa það þar sem við verðum að búa til fjárhagslegan hvata í þá átt líka. Það skiptir máli af því að hér er um að ræða svo margþættar áskoranir og svo margþætta hagsmuni sem eru undir.

Ég veit að þetta er flókið og viðamikið mál og þeir þingmenn sem munu taka það áfram til meðferðar eiga töluverðan lestur fyrir höndum og samtöl við hina ýmsu umsagnaraðila. Ég veit að ráðuneytið, sem þekkir þetta mál augljóslega einna best í dag, eðli málsins samkvæmt, eins og staðan er núna, mætir á fund nefndarinnar og við erum auðvitað boðin og búin að svara spurningum og gefa upplýsingar. Ég hlakka til að fylgjast með frekari vinnslu á þessu mikilvæga máli fyrir okkur öll.